GRV hljóp norræna skólahlaupið í morgun

Í morgun hlupu nemendur við Grunnskóla Vestmannaeyja hið árlega Norræna Skólahlaup. Hlaupnir voru 3 km, hin svokallaði ÍBV-hringur.

Hlaupið var af stað frá Íþróttamiðstöðinni kl. 10:00 en þó ekki fyrr en Anna Lilja Sigurðardóttir var búin að hita hlauparana vel upp.

Foreldrum og starfsfólki var boðið að taka þátt í hlaupinu með nemendum og nýttu sér það einhverjir. Að hlaupi loknu fengu allir ávexti frá Krónunni.

Norræna skólahlaupið fór fyrst fram á Íslandi árið 1984.  Allir grunnskólar á Norðurlöndum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti.

Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur til að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu og kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.