Guðrún Bergrós Tryggvadóttir er matgæðingur vikunnar: Pizza og heit döðlukaka með karmellusósu
�?g vil byrja á að þakka Silvíu Björk vinkonu fyrir áskorunina. �?g ætla að gefa ykkur uppskrift af föstudagspizzudeiginu mínu, mjög einfalt & fæ ég alltaf lof fyrir góðar pizzur.
Pizzudeig.
�?� 7 dl hveiti
�?� 1 tsk sykur
�?� 1/2 tsk salt
�?� 1 poki ger
�?� 1 msk olía
�?� 1 msk hunang
�?� 3 dl heitt vatn.
Hnoðað saman, stráið smá hveiti & Oregano yfir, látið hefa sig í 1/2 klst. Ef deigið er blautt þá er bara að bæta smá hveiti við.
�?g skipti deiginu í helming & flet það út á tvær plötur því ég vil ekki hafa botninn þykkann, ein fullorð-inspizza & ein barna er mjög hentugt fyrir 5 manna fjölskyldu.
�?g vel svo bara það álegg sem fjölskyldunni líkar við, en langar að koma með hugmynd af áleggi sem ég fékk hjá systur minni fyrir helgi.
�?� pizzasósa
�?� tómatar
�?� paprika
�?� camebert
�?� pepperoni
�?� pizzaostur
�?� krydda með salt & pipar.
Inní ofn á blæstri við 180-200°c í 20 mín eða þar til ostur er orðinn gullinbrúnn.
Mig langar einnig að koma með uppskrift af heitri döðluköku sem er alveg svakalega góð með vanilluís & heitri karmellusósu.
Heit döðlukaka.
�?� 250 gr döðlur
�?� 3 dl vatn
�?� 1 tsk matarsódi
�?� 100 gr mjúkt smjör
�?� 130 gr púðursykur
�?� 2 egg
�?� 150 gr hveiti
�?� 120 gr súkkulaði saxað.
Hitið ofninn í 180°c. Setjið döðlur í pott ásamt vatninu & suðan látin koma upp. Látið bíða í 5 mín, stráið matarsóda yfir. Maukið saman með töfrasprota.
Hrærið saman sykur & smjör, bætið eggjum útí einu í einu, hrærið vel saman.
Bætið döðlumauki útí ásamt hveiti & súkkulaði & blandið vel.
Bakið í 25-30 mín.
Karmellusósa.
�?� 120 gr smjör
�?� 100 gr púðursykur
�?� 1/2 tsk vanilludropar
�?� 3/4 dl rjómi.
Blandið öllu saman & látið sjóða í 5 mín.
�?g þakka fyrir mig & vonandi líkar ykkur vel.
�?g ætla að halda þessu aðeins lengur innan vinkonuhópsins & senda boltann í Grafarvoginn til Viktoríu vinkonu. Hún mun pottþétt koma með einhverja góða uppskrift handa okkur.

Nýjustu fréttir

Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.