Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Gefur út tvöfalda vínylplötu í sumar – Komin á Karolina fund
Fagnað. Fagna því að búið sé að taka upp alla lagagrunna, Arnór Vilbergsson píanó, Jóhann Ásmundsson, bassaleikari, texta- og tónskáldið Guðrún Erlingsdóttir/Rúna og Ásmundur Jóhannsson trommari. Á myndina vantar Sigurgeir Sigmundsson gítarleikara.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

„Ég hef haft í nógu að snúast í janúar og febrúar. Í byrjun janúar tók ég ákvörðun um að láta tíu ára gamlan draum rætast. Að gefa út öll  lögin mín nítján. Að vísu á geisladisk á þeim tíma sem nú hefur breyst í vínilútgáfu, og duga ekki minna en tvær plötur í verkið sem fengið hefur nafnið Sólarlag ,“ segir Eyjakonan Guðrún Erlingsdóttir sem hefur komið víða við í starfi og leik og  nú er það tónlistin sem á huga hennar allan.

„Frá því að fyrstu lögin komu til mín í Dverghamrinum 2011 hef ég alltaf vitað að þau ættu að koma út. Í fimmtán ár hef ég safnað kjarki til þess að láta þann draum verða að veruleika. Síðustu fimm ár hef ég lagt til hliðar aukapening og safnað í sérstakan tónlistarsjóð. Þegar lagið mitt, Drottinn ég tilbið þig kom út á plötu Guggu Lísu, Komi ríki þitt, í haust og ég fékk plötuna í hendurnar vissi ég að nú yrði ekki lengur beðið. Setti mér það markmið að gefa út á vínyl öll lögin mín átján sem eru með textum eftir mig og nítjánda lagið er svo instrumental,  þ.e.a.s. án söngs,“ segir Guðrún.

„Í byrjun janúar, nánar tiltekið þann fjórða kom kjarkurinn og ég sendi strax um kvöldið öll lögin mín á Stúdíó Paradís í Sandgerði og spurði hvort þeir viltu taka upp fyrir mig. Það er í eigu Jóhanns Ásmundssonar bassaleikara úr Mezzoforte og Ásmundar sonar hans sem er trommuleikari og upptökustjóri,“ segir Guðrún sem strax morguninn eftir fékk svar frá feðgunum sem leist vel á.

„Þeir sögðu þetta stærsta verkefni sem þeir hefðu fengið í upptökum. Kom svo fljótlega í ljós að ein vínylplata dugði ekki svo þær verða tvær. Annað hvort geri ég þetta með stæl eða sleppi því,“ var það sem Guðrún hugsaði og hún sló til.

Tveimur vikum síðar voru fyrstu tvö lögin tekin upp en fyrir höfðu tvö lög komið út, Friður á jólanótt og Drottinn ég tilbið þið. „Dagana 25. til  27. febrúar var klárað að taka upp alla grunna þ.e.a.s. lögin sjálf. Tuttugasti og áttundi febrúar fór í að taka upp söng í sjö lögum. Í dag tókum við upp söng í tveimur lögum og á morgun verður söngur í síðustu þrjú lögin tekin upp.“

Mæðgurnar æfa sig fyrir upptöku. Guðrún og Jóhanna Björk.

Valdi góða tónlistarmenn

„Ég ákvað strax að fá í lið með mér góða hljómlistarmenn og þar voru og Ásmundur og Jóhann efstir á blaði. Sigurgeir Sigmundsson, sem bjó í Eyjum þegar hann var framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Týs valdi ég sem gítarleikara og organisti  Keflavíkurkirkju Arnór Vilbergsson spilar á píanó.“

Söngvarar á plötunni eru Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Drífa Nadía Thoroddsen, Gugga Lísa, Kolbrún Shalini Árnadóttir,  Sísí Ástþórsdóttir og Tómas Guðmundsson auk Barnakórs Keflavíkurkirkju. „Ég syng eitt lag á plötunni og eitt lag syngjum ég og dóttir mín Jóhanna Björk saman.“

Í bakröddum eru söngvarar ættaðir úr Vestmannaeyjum og kórfélagar úr ýmsum kórum.Stefnt er að því að platan komi út í lok júní en hún verður pressuð í Danmörku. „Í dag fór ég á Karolinafund þar sem hægt er að styðja við útgáfuna með því að kaupa Sólarlag, á vínyl sem er best eða kaupa í forsölu stafrænu útgáfuna fyrir þá sem ekki eiga plötuspilara,“ segir Guðrún hvergi bangin.

Upplifun að sjá lögin fullorðnast

„Það er ótrúlega skemmtilegt, gefandi og ný reynsla að vera með í upptökum á tónlistinni sinni. Það gerast töfrar í stúdíóinu. Það er upplifun að sjá lögin fullorðnast í höndum snillinganna. Mér þykir líka vænt um hversu mikla virðingu hljómlistarmennirnir bera fyrir lögunum mínum og leggja mikla áherslu að laglínan haldi sér,“ sagði Guðrún að endingu.

Sísí Ástþórs syngur þrjú lög með sinni fallegu rödd.

 

Sigurgeir gítarleikari og fyrrum framkvæmdastjóri Týs.

 

Verið að gera klárt fyrir upptökur á grunnum laganna.

 

Kolbrún Shalini Árnadóttir syngur þrjú lög á Sólarlagi.

Nýjustu fréttir

Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.