Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir í eftirtöldum landshlutum: Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra.

Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi klukkan 2 í nótt og gildir til kl. 9 í fyrramálið. Í viðvörunartexta segir: Hvassviðri eða stormur með vindhraða á bilinu 13-20 m/s og mjög hvössum vindstrengjum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 30 m/s. Búast má við talsverðri eða mikilli snjókomu eða éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum á Hellisheiði og í Þrengslum. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag (föstudagurinn langi):
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en strekkingur vestast. Él sunnan- og vestantil, en annars bjart með köflum. Vaxandi norðvestanátt og fer að snjóa norðaustanlands seint um kvöldið. Hiti um og yfir frostmarki, en frost að 7 stigum norðanlands, kaldast í innsveitum.

Á laugardag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og yfirleitt léttskýjað, dálítil él suðvestantil, en strekkingur með snjókomu norðaustantil á landinu, en síðar norðantil. Áfram kalt í veðri.

Á sunnudag (páskadagur):
Fremur hæg suðlæg átt og yfirleitt bjart veður, en strekkingur eða allhvasst norðantil á landinu. Víða snjókoma fram eftir degi, en þurrt að mestu á Suður- og Suðvesturlandi. Frost 1 til 7 stig.

Á mánudag (annar í páskum):
Útlit fyrir vaxandi austanátt og dálítil él framan af degi, en snjókomu seinnipartinn, fyrst sunnantil, með líkum á slyddu með ströndinni. Lengst af þurrt norðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir ákveðna austlæga átt og víða rigningu eða snjókomu, einkum um austanvert landið. Hiti 1 til 7 stig að deginum.
Spá gerð: 01.04.2026 08:44. Gildir til: 08.04.2026 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Hæðarhryggur fer yfir landið í dag. Lægir fyrir hádegi á vestanverðu landinu og dregur smám saman úr éljum, en áfram vestan 10-15 m/s austanlands fram eftir degi. Hiti 1 til 6 stig, en nálægt frostmarki austanlands. Seint í dag er hæðarhruggurinn kominn yfir austanvert landið og þar verður þá breytileg átt 3-8 m/s, en snýst í vaxandi suðaustanátt með dálítilli vætu vestanlands.

Gengur í suðaustan hvassviðri eða storm í nótt með rigningu eða snjókomu, en þurrt að mestu norðanlands.

Lægir og kólnar á morgun, fyrst suðvestantil. Snjókoma eða slydda víða um land, en dregur smám saman úr ofankomu síðdegis, eins og áður, fyrst suðvestantil. Suðvestan 8-13 og él undir kvöld, en suðaustan 15-23 með snjókomu eða slyddu á norðaustanverðu landinu fram að miðnætti. Hiti um eða rétt yfir frostmarki.

Breytileg átt 5-13 á föstudag, él sunnan- og vestanlands, en bjart að mestu annars staðar. Fer að snjóa norðaustantil um kvöldið. Hiti um frostmark yfir daginn, en víða næturfrost.

Á laugardag og sunnudag verður suðvestlæg eða breytileg átt. Dálítil él á víð og dreif sunnantil, en snjókoma fyrir norðan. Hiti um eða undir frostmarki.
Spá gerð: 01.04.2026 06:21. Gildir til: 02.04.2026 00:00.

Nýjustu fréttir

Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.