Gular viðvaranir gefnar út
Gul Vidv 170125
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna veðurs á Suðurlandi, á Austfjörðum og á Suðausturlandi.  Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi kl. 23:00 í kvöld gildir til kl. 07:00 í fyrramálið.

Í viðvörunarorðum segir: Austan og norðastan 13-23 og hviður yfir 35 m/s, hvasssast og mest úrkoma undir Eyjafjöllum. Snjókoma eða slydda á láglendi með lélegu skyggni og erfiðum aksturskilyrðum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðaustan og austan 13-23 m/s, hvassast syðst á landinu. Snjókoma með köflum og vægt frost, en frostlaust við suðurströndina.

Á sunnudag:
Norðaustan og austan 10-18, en 18-23 syðst. Snjókoma með köflum, en úrkomuminna norðanlands. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Norðaustan 8-18, hvassast suðaustantil. Dálítil snjókoma, en þurrt að kalla vestanlands. Frost 0 til 7 stig.

Á þriðjudag:
Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Herðir á frosti.

Á miðvikudag:
Suðaustlæg átt og hlýnar með dálitlum skúrum eða éljum, en þurrt og áfram kalt norðan- og austanlands.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir austan- og suðaustanátt með dálítilli rigningu eða slyddu, en þurru veðri norðan- og vestanlands.
Spá gerð: 16.01.2025 21:00. Gildir til: 23.01.2025 12:00.

Veður.is

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.