Gummi hennar Sædísar
MyndGJÁ
Guðmundur Jóhann Árnason

Aðsend grein

Guðmundur Jóhann Árnason

Vinur minn sagði við mig um daginn, alvarlegur í bragði en með gamansömum tón að ég yrði alltaf Gummi hennar Sædísar, sama hvað ég myndi gera, a.m.k. hér í Vestmannaeyjum.

Mér fannst þetta skemmtileg pæling. Ekki vegna þess að það sé neitt slæmt við að vera maðurinn hennar Sædísar, þvert á móti. Ég fattaði það bara þarna að þetta var fullkomlega rétt hjá honum. Svona virka nefnilega Vestmannaeyjar.

Þú getur menntað þig, komist í háar stöður, stofnað fyrirtæki, unnið til verðlauna eða jafnvel  stofnað Hljómey. Ég gæti þess vegna fundið upp lækningu við skalla, en í enda dags myndi alltaf einhver segja: „Já þessi, Gummi hennar Sædísar“.

Ég hef setið ótal stundir við kaffiborð, nú eða við rauðvínsglas, þar sem Vestmannaeyingar eru ræddir, eins og von er hér og vísa. Oft á tíðum er þetta eins og að sitja undir atriði Fóstbræðra um Bílastæðaverðina. Það er nefnilega þannig að ef einhver er óviss um hver Sædís er, þá er bara farið eitt skref aftar í ættartréð og svo aftar ef þarf. Ef það næst ekki er farið í „Ólst hún upp á Hrauntúninu eða Búhamrinum?“.  Allt í einu er búið að nefna um það bil 20 ný nöfn, allt til þess að rekja ættir Sædísar, þegar verið var að ræða Gumma…hennar Sædísar. Það sama á við um Bigga hennar Kollu, Adda hennar Minnu og Ragga hennar Kristínar. Meira að segja Eyþór Harðar, oddviti, bæjarstjórnamaður og útgerðarstjóri, er bara Eyþór hennar Laufeyjar.

Eftir 50 ár þá mun standa upp maður, kannski skjálfandi, inni á Hraunbúðum og einhver nýr starfsmaður spyr: „Hver er þetta?“ og úr horninu mun heyrist lágum rómi… „Þetta er Gummi hennar Sædísar.“

Þetta er vissulega sérkennilegt en sprettur ekki úr engu. Í Vestmanneyjum ertu nefnilega ekki skilgreindur af því hvað þú gerir í vinnunni eða áorkar. Í Vestmannaeyjum ertu skilgreindur með tengingum. Þú ert barn einhvers, systkini einhvers eða maki einhvers og ef það þrýtur, þá áttiru heima einhversstaðar.

Kannski einn daginn verður einhver kenndur við mig en ég hef þó ákaflega litlar vonir um það. Ég gæti nefnilega orðið Forseti Íslands og það myndi engu breyta.

Fréttin í Eyjafréttum væri þá svona:

„Gummi hennar Sædísar orðinn Forseti Íslands.“

Myndatextinn væri: „Sædís er hér til vinstri. Gummi hennar sést við hlið hennar.“

 

Gummi hennar Sædísar aka. Guðmundur Jóhann Árnason

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.