Hádegisfundur Íslandsbanka í Eldheimum á morgun
Í tilefni nýrrar skýrslu Íslandsbanka um íslenska ferðaþjónustu býður Íslandsbanki til hádegisfundar í Eldheimum þriðjudaginn 24. apríl. Fundurinn hefst kl. 12:00 en boðið verður upp á létta hádegishressingu frá kl. 11:45.
Með útgáfu skýrslunnar vill Íslandsbanki leggja sitt af mörkum við að upplýsa um stöðu ferðaþjónustunnar og gefa innsýn í þróun og horfur greinarinnar hverju sinni. �?etta er í fjórða sinn sem Íslandsbanki gefur út skýrsluna og að þessu sinni var einnig gerð viðamikil greining á rekstrarniðurstöðum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja.
Dagskrá
Íslensk ferðaþjónusta
Bjarnólfur Lárusson, viðskiptastjóri í Verslun og þjónustu og Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur í Samskiptum og greiningu hjá Íslandsbanka kynna nýja skýrslu Íslandsbanka um íslenska ferðaþjónustu.
Pallborðsumræður um stöðu ferðaþjónustunnar og það sem framundan er:
�?� Berglind Sigmarsdóttir, eigandi Gott og formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja
�?� Bjarni Geir Bjarnason, eigandi Hótel Eyja og BGB ferðaþjónustu ehf
�?� Hafdís Kristjánsdóttir, eigandi Tangans og Glamping and Camping
�?� Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka
�??�??�??�??�??�??�??�??�??�??�??�??
Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka stýrir fundinum. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi til kl. 13:00.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.