Hættustig Almannavarna á öllu landinu nema Vestfjörðum
Farvidri Ovedur 22 Opf
Björgunarsveitin að störfum í ofsaveðri. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir hættustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn. Hættustig Almannavarna gildir frá og með 15:00 í dag.

Veðrið gengur yfir landið á mismunandi tíma með mismiklum áhrifum og er fólk hvatt til að fylgjast með á vef Veðurstofunnar.  Auk þess er hægt að fylgjast með færð á vegum á vef Vegagerðarinnar. Veðrinu sem er spáð getur valdið miklum samfélagslegum áhrifum og getur valdið tjóni. Einnig getur það haft mikil áhrif á þjónustu, innviði og samgöngur á landi og lofti, segir í tilkynningu á vef Almannavarna.

Vegna hættustigs Almannavarna verða breytingar á starfsemi og þjónustu í stofnunum Vestmannaeyjabæjar. Í tilkynningu á vefsíðu bæjarins er fólk vinsamlega beðið um að vera ekki á ferli á meðan rauð viðvörun stendur yfir. Þá segir:

English below

Rauð VIÐVÖRUN, Red WARNING, Czerwony ZAGROŻENIA 2 (POMARAŃCZOWY ALERT)

Vinsamlegast athugið að aðstæður geta breyst og verða uppfærðar eftir þörfum.

Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurlandið og gildir fyrir eftirfarandi tímasetningar:

  • Miðvikudaginn 5. febrúar frá kl. 16:00 – 20:00 
  • Fimmtudaginn 6. febrúar frá kl. 08:00 – 13:00

Fyrir utan þessa tíma er appelsínugul viðvörun í gangi næsta sólahringinn.

Tilmæli til íbúa:

  • Allt leik- og grunnskólahald fellur niður fyrir hádegi fimmtudaginn 6. febrúar. Staðan verður tekin kl. 11:00 varðandi skólahald eftir hádegi.
  • Íþróttamiðstöð verður lokuð frá kl. 15:30 í dag til kl. 13:00 á morgun.
  • Gera má ráð fyrir skertri þjónustu í öðrum stofnunum sveitarfélagsins en staðan verður tekin í fyrramálið og koma þá frekari tilkynningar frá forstöðumönnum sem við birtum á fésbókarsíðu sveitarfélagsins.
  • Fylgið fyrirmælum og uppfærslum frá yfirvöldum.

Fylgstu með:

—————————————

English

The National Commissinoer of the Icelandic Police, in collaboration with the local police authorities, including Vestmannaeyjar, has declared a Civil protection alert lever due to the weatherforecast for the next 24 hours. This alert reamins in effect until the weather subsides tomorrow, Thursday, February 6th.

Due to the Civil Protection Alert Level, changes will be made to the operaions and services of municipal institutions.

People are kindly requested not to travel while the red warning is in effect.

A red weather warning has been issued for South coast, effective during the following time periods:

  • 05 February (Wednesday): 16:00 – 20:00
  • 06 February (Thursday): 08:00 – 13:00                                                                                               An orange weather warning is in place outside these specific hours mentioned above.
  • The schools will be closed tomorrow morning until 13:00. Further information regarding school activities after 13:00 tomorrow will be issued at 11:00 in the tomorrow morning.
  • The sport center will be closed from 15:30 today until 13:00 tomorrow.
  • Reduced services can be expected in other muncipal institutions but there will be further information about that in the morning.

Stay Informed:

Nýjustu fréttir

Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.