Hákon Daði færir sig til Eintracht Hagen

Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson samdi í dag við þýska handknattleiksliðið Eintracht Hagen sem leikur í næst efst deild. Keppni í 2. deild hófst í kvöld en Hagen á leik á morgun á heimavelli gegn Bietigheim. Standa jafnvel vonir til þess að Hákon Daði verði í liðinu strax í fyrsta leik. Hann staðfesti vistaskiptin við handbolti.is síðdegis í dag.


Fá tækifæri hjá Gummersbach
Hákon Daði hefur þar með yfirgefið Gummersbach eftir tveggja ára veru. Hann var að hefja sitt þriðja tímabil með Gummersbach en var kominn í þá stöðu að vera þriðji í röðinni af vinstri hornamönnum eftir samkeppnin jókst með komu þriðja vinstri hornamannsins í sumar. Fyrir vikið kom hann lítið sem ekkert við sögu í æfingaleikjum fyrir tímabilið eða í tveimur fyrstu leikjum Gummersbach í 1. deild.

„Vegna stöðunnar hef ég verið að leita að öðru liði til þess að spila með. Loksins í dag þá samdi ég við Hagen,“ sagði Hákon Daði við handbolta.is.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.