Tæpum hálfum milljarði króna var lýst í þrotabú fiskvinnslunnar Péturseyjar í Vestmannaeyjum en skiptum á búinu var lokið þann 5. febrúar sl. Uppí veðkröfur fengust greiddar rúmar 90 milljónir króna en ekkert fékkst greitt uppí aðrar kröfur.
Frá þessu er greint í Lögbirtingarblaðinu í dag.
Stærstu kröfuhafar voru Íslandsbanki, Landsbankinn og Guðjón Rögnvaldsson , eigandi félagsins, samkvæmt upplýsingum frá Helga Bragasyni, skiptastjóra búsins. Hann segir kröfu Helga hafa talist til almennra krafna og að ekkert hafi fengist greitt upp í þær. �?á var hvorki skip né kvóti í eigu félagsins við gjaldþrotaskiptin.
Pétursey ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði héraðsdóms Suðurlands þann 13. nóvember sl. Fiskvinnslan hætti starfsemi í nóvember á árinu 2013, en þar störfuðu tæplega fimmtán manns sem í kjölfarið misstu vinnuna.
�?á var öllu starfsfólki fiskvinnslunnar einnig sagt.