Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 520.000 krónur
Há­mark greiðslna úr Fæðing­ar­or­lofs­sjóði til for­eldra í fæðing­ar­or­lofi hef­ur verið hækkað um 20.000 kr. á mánuði, eða í 520.000 kr. �?etta kemur fram í til­kynn­ingu frá vel­ferðarráðuneyt­inu.
Ásmund­ur Ein­ar Daðason, fé­lags- og jafn­rétt­is­málaráðherra, seg­ir í til­kynn­ingu, að þetta sé fyrsta skrefið í áform­um stjórn­valda um auk­inn stuðning við barna­fjöl­skyld­ur með hækk­un or­lofs­greiðslna og leng­ingu fæðing­ar­or­lofs­ins. Fyr­ir dyr­um standi að end­ur­skoða fæðing­ar­or­lofs­kerfið með þetta að mark­miði, líkt og fjallað sé um í stjórn­arsátt­mál­an­um.
�??Í þessu felst ekki ein­ung­is fjár­hags­leg­ur stuðning­ur, held­ur einnig fé­lags­leg­ur þar sem mark­miðið er að börn fái notið sam­vista með for­eldr­um sín­um á fyrstu mánuðum lífs síns. Eins er það mik­il­vægt jafn­rétt­is­mál að feður nýti rétt sinn til fæðing­ar­or­lofs en á því hef­ur verið al­var­leg­ur mis­brest­ur síðustu ár, eða frá því að farið var að skerða há­marks­greiðslurn­ar í kjöl­far efna­hags­hruns­ins�?? seg­ir Ásmund­ur Ein­ar í til­kynn­ing­unni.
Breyt­ing­ar á fjár­hæðum sam­kvæmt reglu­gerðinni öðlast gildi 1. janú­ar 2018 og eiga við um for­eldra barna sem fæðast, eru ætt­leidd eða tek­in í var­an­legt fóst­ur 1. janú­ar 2018 eða síðar.
Breyt­ing­arn­ar eru eft­ir­far­andi:
Há­marks­greiðsla hækk­ar úr 500.000 kr. í 520.000 kr.
Lág­marks­greiðsla fyr­ir 25-49% starf hækk­ar úr 118.335 kr. í 123.897 kr.
Lág­marks­greiðsla fyr­ir 50-100% starf hækk­ar úr 164.003 kr. í 171.711 kr.
Fæðing­ar­styrk­ur til for­eldra utan vinnu­markaðar eða í minna en 25% starfi hækk­ar úr 71.563 kr. í 74.926 kr.
Fæðing­ar­styrk­ur til for­eldra í fullu námi hækk­ar úr 164.003 kr. í 171.711 kr.
Eldri fjár­hæðir (greiðslur úr Fæðing­ar­or­lofs­sjóði 2017) gilda áfram vegna barna sem:
Fædd­ust, voru ætt­leidd eða tek­in í var­an­legt fóst­ur á tíma­bil­inu 15. októ­ber 2016 – 31. des­em­ber 2017
Fædd­ust, voru ætt­leidd eða tek­in í var­an­legt fóst­ur fyr­ir 15. októ­ber 2016

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.