Handboltaþrenna í dag

Laugardaginn 16.nóvember verður svokölluð tvenna í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum!

Strákarnir í meistaraflokki karla ríða á vaðið og mæta HK-ingum í Olís deild karla, sá leikur hefst klukkan 14:00.

Næst er svo komið að stelpunum okkar gegn Fram í Olís deild kvenna, sá leikur hefst klukkan 16:30.

Þriðji og síðasti leikurinn verður svo leikur hjá U-liði karla, gegn U liði HK í 2.deild karla og hefst sá leikur kl.18:30

Barnapössunin verður á sínum stað í Olís-deildar leikjunum og svo verða seldar pizzur frá Pizza 67 á milli þeirra leikja.

Mætum öll í góðum gír, öskrum okkur hás, klöppum eins og enginn sé morgundagurinn og styðjum okkar lið eins og Eyjamönnum sæmir! Alvöru handbolta-laugardagur í Eyjum!

Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar!

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.