Happafley kveður Heimaey
Heimaey Opf 20250507 200935(0)
Heimaey VE siglir frá Eyjum í síðasta sinn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Á miðvikudagskvöldið hélt Heima­ey VE í síðasta sinn úr heima­höfn. Ísfé­lagið hef­ur selt skipið til Nor­egs og verður af­hent kaup­end­um í Maloy í næstu viku. Skipið hefur reynst félaginu vel á allan hátt þau þrettán ár sem það hefur verið gert út.

Sjá einnig: Heimaey VE seld til Noregs

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta hefur verið viðstaddur flesta hápunkta hjá skipinu sem samið var um smíði á árið 2007 við skiðasmíðastöðina Asm­ar Talca­huano í Síle. Af­hend­ing skips­ins tafðist sökum öflugs jarðskjálfta sem skók Síle árið 2010. Skipið var síðan af­hent Ísfélaginu árið 2012.

Myndasyrpu Óskars Péturs má sjá hér að neðan. Þar má sjá þegar skrifað var undir samning um smíði skipsins. Þegar skipið kom til Vestmannaeyja í fyrsta sinn. Þá fór Óskar Pétur með skipinu á loðnuveiðar um árið og að endingu þegar skipið sigldi frá Eyjum í fyrrakvöld.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.