Harmar áhugaleysi samgönguyfirvalda á stöðu Eyjamanna
Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsti á aukafundi í gærkvöldi yfir miklum vonbrigðum með þær óboðlegu aðstæður í samgöngumálum sem Vestmannaeyingum, gestum þeirra og atvinnulífi hefur verið boðið upp á undanfarna daga. Af þeim 47 áætluðu ferðum afleysingaferjunnar Rastar voru einungis farnar 26 ferðir og því 45% ferða ferjunnar felldar niður.
Í ályktun segir: �??�?rjá heila daga lágu ferjusiglingar milli lands og Eyja alfarið niðri á því 10 daga tímabili sem Röstin var við þjónustu í Vestmannaeyjum. Slíkar samgöngutruflanir eru stórskaðlegar samfélaginu í Vestmannaeyjum, atvinnulíf hefur beðið mikinn fjárhagslegan skaða og orðið fyrir miklum óþægindum, lífsgæði íbúa hafa verið verulega skert, borið hefur á vöruskorti og hefur samfélagið beðið hnekki.
Samgöngur í Vestmannaeyjum eru nægilega erfiðar í stöðugri baráttu við náttúruna, válynd veður og sandburð að það er þyngra en tárum taki að samgönguyfirvöld og aðrir aðilar sem eru ábyrgir fyrir samgöngum milli lands og Eyja auki enn frekar á þá erfiðleika sem eru við að halda uppi ásættanlegum samgöngum við Vestmannaeyjar. Bæjarstjórn Vestmannaeyja ítrekaði á síðasta fundi sínum að ekki kæmi á neinum tíma til greina að skip leysti Herjólf af sem ekki hafi fullt haffæri á siglingaleiðinni milli lands og Eyja og ef ekki fyndist skip sem gæti þjónustað í báðar hafnir yrði athuguð hagkvæmni þess að seinka slipptöku fram á vetur og fá til þjónustu stórt og öflugt skip sem gæti haldið uppi háu þjónustustigi í siglingum til �?orlákshafnar. �?au tilmæli voru því miður virt að vettugi með kostnaðarsömum afleiðingum.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja harmar að samgönguyfirvöld hafi sýnt aðstæðum Vestmannaeyinga og samgönguþörf þeirra jafn lítinn skilning og raun ber vitni og er þetta enn ein staðfestingin á nauðsyn þess að bæjaryfirvöld hafi með einhverjum hætti beina aðkomu að þessu stærsta hagsmunamáli sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja beinir því til samgöngunefndar Alþingis að fram fari opinber rannsókn á þeim ákvörðunum sem leiddu til þessarar hörmulegu niðurstöðu fyrir samfélagið í Eyjum og ómælds kostnaðar fyrir ríkissjóð.�??
Ályktunin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Nýjustu fréttir

Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.