Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
fánar_17_juni_cr
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Rigning hefur sett svip sinn á þjóðhátíðardaginn í Vestmannaeyjum og því fara hátíðarhöld dagsins fram innandyra í Íþróttamiðstöðinni. Skrúðgangan verður engu að síður á sínum stað og leggur af stað frá Skátaheimilinu við Faxastíg klukkan 13:45.

Þrátt fyrir breytinguna verður dagskrá dagsins að mestu óbreytt og lögð er áhersla á að skapa hátíðlega og gleðilega stemningu í tilefni þjóðhátíðardagsins, segir í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum.

Samkvæmt dagskrá verða meðal annars hátíðarávarp, hátíðarljóð, tónlistaratriði, skemmtiatriði fyrir börn og fjölskyldur, andlitsmálun, leikir og fjölbreytt afþreying.

Íbúar og gestir eru hvattir til að fjölmenna og fagna þjóðhátíðardeginum saman, þrátt fyrir að veðrið setji mark sitt á skipulag dagsins.

Helstu dagskrárliðir

  • Kl. 13:30 – Safnast saman við Skátaheimilið við Faxastíg
  • Kl. 13:45 – Skrúðganga leggur af stað
  • Kl. 14:00 – Hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni
  • Kl. 15:00 – Tónlistaratriði í Hraunbúðum
  • Kl. 16:00 – Mjólkurbikar kvenna: ÍBV – FH á Hásteinsvelli

Nýjustu fréttir

Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.