Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
default
Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar í góðu skapi. Hátt í 50 manns koma að síldarvinnslunni á sólarhring. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Síldarvinnslan hjá Vinnslustöðinni hefur gengið vel í haust þótt veður hafi stundum truflað veiðarnar. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og koma hátt í 50 manns að vinnslunni á sólarhring. Þetta kemur fram í myndbandsviðtali við Sindra Viðarsson, sviðsstjóra uppsjávarsviðs, á vef Vinnslustöðvarinnar.

Sindri segir vinnsluna hafa hafist í fyrstu viku september og gerir ráð fyrir að hún standi í um tvær vikur til viðbótar. Skipin hafa komið með 700–1.000 tonn í löndun hverju sinni og tekur þrjár til fimm vaktir að vinna úr þeim afla.

Aðallega er nú unnin norsk-íslensk síld af miðunum fyrir austan land. Þegar viðtalið var tekið var öll síldarvinnslan í gangi og síldin heilfryst, flökuð og unnin í flapsa.

Í viðtalinu ræðir Sindri gang vertíðarinnar og starfsemina í uppsjávarvinnslunni. Hann vonast til að áfram gangi vel það sem eftir lifir síldarvertíðar og eftir góðri loðnuúthlutun á næstu dögum. Viðtalið við Sindra má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.