Heilbrigðismál"
Heilbrigðismál er oft í umræðunni í Vestmannaeyjum og við höfum sterkar skoðanir á þeim málaflokki. Vegna legu okkar og einangrunar erum við í sérstöðu hvað varðar flutning á veikum eða slösuðum, sé ekki talað um verðandi mæður. Heilbrigðsstofnun Suðurlands hefur unnið að því að fá skilgreiningu frá ráðuneyti heilbrigðismála hver þjónustan eigi að vera hér. Heyrst hefur í umræðunni að hér verði að vera svæfingar-og skurðlæknir allt árið en eftir því sem best verður vitað er slíkt kostnaðarsamt og ekki á hreinu hvar sá kostnaður lendir miðað við skilgreint þjónustustig í dag. �?að hefur verið í umræðunni að leysa vandann með því að staðsetja sjúkraþyrlu á Suðurlandi og mun starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins skila af sér tillögum á allra næstu dögum. �?að yrði bylting fyrir okkar samfélag ef þyrla yrði staðsett á okkar nærsvæði, með mönnun allan sólarhringinn af bráðalækni og bráðatækni. �?að yrði mikil aukning á gæðum og viðbragði á bráðaþjónustu í Vestmannaeyjum. �?að gæti einnig aukið á öryggi verðandi mæðra þegar viðbragðs-og flutningstími er styttur svona áþreifanlega. �?að gæti gert það að verkum að fæðingum myndi fjölga aftur í Eyjum sem eru jákvæðar fréttir. �?að vekur furðu mína að núverandi bæjarfulltrúar minnihluta og meirihluta sýni þessu brýna hagsmunamáli okkar Eyjamanna engan áhuga og einblína einungis á eina lausn í þessu máli sem er á valdi annarra. �?g hvet því frambjóðendur allra framboða að styðja við þessa hugmynd til að tryggja bætingu á þessari þjónustu til handa eyjamönnum og þeirra sem heimsækja Heimaey. �?að breytir því samt ekki að það er full þörf á að á skilgreina og meta þörfina á hvernig læknauppsetning sé í Vestmannaeyjum til frambúðar og það er hlutverk kjörinna fulltrúa að veita yfirvöldum aðhald í þeim efnum. Fyrir-Heimaey mun mæla áfram fyrir aukningu á gæðum heilbrigðisþjónustu og öruggum og skjótum flutningi á fólki sem þarf á því að halda.
Styrmir Sigurðarson, í 12. sæti á lista Fyrir Heimaey

Nýjustu fréttir

Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.