Heim á ný
5. mars, 2024
HeimÁný-tix-872x654

Blákaldur veruleikinn sló okkur Eyjamenn um miðjan vetur 1973. Á fallegu en köldu vetrarkvöldi byrjuðu Eyjarnar aðeins að hristast, þó ekki þannig að fólk hafi endilega reiknað með því að innan örfárra klukkustunda myndi Eyjan rifna upp og gos hefjast nærri byggð á Heimaey.  Móðir náttúra minnir á sig reglulega á landi íss og elda.

Eyjamenn þekkja það betur en flestir aðrir hvernig það er að þurfa að yfirgefa heimili sín og reiða sig á stuðning annarra á óvissutímum.  Við Eyjamenn þurftum að yfirgefa heimili okkar fyrir rúmu 51 ári og gátum síðar snúið heim.  Það ferli tók um og yfir hálft ár en uppbyggingin tók mun lengri tíma.

Nú hafa Grindvíkingar þurft að þola jarðskjálfta og mikið óöryggi vel á þriðja ár.  Smátt og smátt varð ljóst að staðan í Grindavík væri orðin grafalvarleg og að líklegt væri að óvissan myndi á endanum leiða til þess að íbúar þyrftu að undirbúa það að yfirgefa bæinn

Grindvíkingar yfirgáfu heimili sín þann 10.nóvember síðastliðinn og enn sér ekki fyrir endann á þeirri óvissu sem íbúar standa frammi fyrir.  Því má segja að Grindvíkingar séu í verri stöðu en við Eyjamenn vorum í fyrir rúmri hálfri öld.

Allri þessari óvissu fylgir svo að atvinnuöryggi er lítið og ýmis kostnaður bætist við nánast hvert einasta heimili íbúa bæjarins.

Styrktartónleikar og styrktarsöfnun Eyjamanna fyrir Grindvíkinga!

Við Eyjamenn ætlum því að sýna stuðning okkar í verki og höldum styrktartónleika fyrir Grindvíkinga föstudagskvöldið 03.maí næstkomandi og samhliða sölu á tónleikana, setjum við af stað söfnun hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja leggja hönd á plóg.

Sótt hefur verið um leyfi sýslumanns fyrir söfnuninni og hún unnin í samráði við Grindarvíkurbæ, en þar verður sérstakur sjóður settur á laggirnar með sérstakri úthlutunarnefnd.

Söfnunarnefndin hér í Eyjum er skipuð þeim Höllu Svavarsdóttur, Njáli Ragnarssyni, Sigurhönnu Friðþórsdóttur, Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, Bjarna Ólafi Guðmundssyni og Gísla Valtýssyni, sem verður sérstakur fjárgæslumaður söfnunarinnar.

Á tónleikunum 03.maí koma listamenn frá Eyjum til með að skemmta og flytja tónlist í anda Eyjatónleikanna í Hörpu.  Þeir sem þegar hafa boðað komu sína eru Karlkór Vestmannaeyja, Blítt og létt hópurinn,  hljómsveitin Gosarnir með þá Gísla Stefáns, Jarl Sigurgeirs, Sæþór Vídó, Þóri Ólafs og Bigga Nielsen innanborðs og fá þeir nokkra gestasöngvara, meðal annars Unu Þorvalds, Tóta Óla og Hafþór Hafsteins og hljómsveitin Molda.  Það er því óhætt að lofa miklu fjöri í Höllinni og hverrar krónu virði að styðja verkefnið og mæta í Höllina. Sérstakir gestir verða Matti Matt og Védís Hervör.

Allur ágóði af tónleikunum rennur beint í söfnunina og þökkum við Hallarbændum fyrir lánið á henni.

Opnuð verður Facebooksíða fyrir tónleikana og söfnunina á allra næstu dögum og við munum verða dugleg að upplýsa Eyjafólk með gang mála.  Við viljum styðja vel við vini okkar í Grindavík.

Miðasala á tónleikana hefst klukkan 10.00 í dag á tix.is, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst