Heimaklettur, fólk, rollur og lífið í úteyjum

Hópur öflugra karla og kvenna hefur gert Heimaklett að föstum punkti í lífinu og telur sig eiga meira tilkall til hans en aðrir. Skýringin er einföld, þetta fólk gengur reglulega á toppinn í leit að bæði andlegri og líkamlegri vellíðan. Og Heimaklettur borgar fyrir sig því af toppnum er að mati hópsins fegursta útsýni í heimi. Vestmannaeyjar allar, Suðurlandið eins og það leggur sig með sínu flatlendi, jöklum og eldfjöllum. Með þeim öflugri er Pétur Steingrímsson, lögregluvarðstjóri sem deilt hefur dýrðinni í ljósmyndum á fésbókarsíðu sinni. Er þar að finna margt gullkornið.
Pétur ætlar á laugardaginn kl. 13.00 í Einarsstofu að gefa Eyjafólki og gestum tækifæri til að kíkja á sýnishorn af myndum sem hann hefur m.a. tekið á og af Heimakletti og úteyjum. Pétur er frístundabóndi og fá nokkrar rollur að fylgja með. Pétur byrjaði snemma að taka myndir og fyrsta minningin er þegar hann fékk að taka með sér myndavél í Þórsferðalagi upp á Skógarsand.


Valli Snæ hvatti til dáða
„Við flugum með Douglas Dakota flugvél, Þristi eins og þær voru kallaðar í íþróttaferðalagi með Þór,“ segir Pétur. Við hlið hans vélinni sat enginn annar en Valli Snæ einn harðasti Þórari allra tíma. Pétur tók myndir í fluginu og svo af félögunum eftir að lent var á Skógarsandi. „Ég spurði Valla hvort ekki væri hægt að taka myndir út um gluggann á vélinni og hann hélt nú að það væri í lagi. Þetta var kassamyndavél frá mömmu og ég tók nokkrar myndir í fluginu og svo eftir að við lentum. Myndirnar sem ég tók úr flugvélinni voru ekkert sérstakar en ágætar myndir tók ég af félögunum í ferðinni,“ segir Pétur þegar hann er beðinn um að lýsa upphafi ljósmyndaferilsins.
„Framan af tók ég ekki mikið af myndum en ég var eitthvað að mynda þegar ég var á Kristbjörgu VE. Það er svo ekki fyrr en fer að fjölga í fjölskyldunni sem þetta tekur kipp hjá mér,“ segir Pétur sem hefur sótt í sig veðrið með hverju árinu. Fáir hafa tekið fleiri myndir á Heimakletti og af þeim sem þar líta reglulega við.
Myndaði afkomendurna
„Þegar Arnar, sonur okkar Bubbu fæddist í júlí 1976 byrjaði ég að taka myndir fyrir alvöru. Ég tók svo margar myndir af barnabörnunum, Degi og Kötlu og því sem þau hafa verið að gera í íþróttum og fleiru.“
Pétur á myndir af sjónum og fjölskyldunni en Heimaklettur og lífið þar og í úteyjum koma líka við sögu. Ekki síst Bjarnarey þar sem hann á heimilisfesti sem bjargveiðimaður. Eftir að stafræna tæknin kom til sögunnar er hann með myndavél á sér nánast hvert sem hann fer. „Hún er lítil og nett, Canon Power Shot 12x Zoom myndavélin mín. Fer vel í vasa og hefur reynst mér vel. Það á ekki síður við um Samsungsímann minn sem er með frábærri myndavél. Með þau að vopni er ég alltaf reiðubúinn að mynda þegar eitthvað sem mig langar að fanga ber fyrir augu.“
Vestmannaeyjabær í öllum blæbrigðum
Pétur hefur vakið athygli fyrir myndir yfir bæinn sem teknar eru af Heimakletti. Líka fyrir myndir af innsiglingunni og höfninni og til allra átta af þessu stolti Eyjamanna. „Ég hef tekið mikið af myndum yfir bæinn á mismunandi árstíma og birtu sem oft hefur komið skemmtilega út. Ég verð með nokkrar af þeim. Líka ætla ég að sýna myndir af fólkinu sem maður hittir á Heimakletti, nokkrar af íbúunum, rollunum fallegu og fólkinu og lífinu í kringum þær og svo nokkrar þokumyndir. Það er sérstakt að leggja af stað í þoku og komast í sól og blíðu þegar upp er komið. En það er erfitt að velja 150 til 200 myndir úr öllu safninu, en það verða margar af fólki og ég vona að gestir verði ánægir,“ segir Pétur.
Verður gaman að fá að kynnast svipmyndum úr safni Péturs í Einarsstofu kl. 13.00 á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur
Frábæru Orkumóti lokið – FH varð Orkumótsmeistari
ÍBV sækir botnlið FH heim
Breytt siglingaáætlun Baldurs næstu daga

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.