Heimaklettur: Framkvæmdir hafnar en framhaldið tefst 
Svavar Steingrímsson gengur upp Heimaklett. Ljósmynd/Gunnar Ingi

Endurbætur á gönguleiðinni upp Heimaklett hófust í sumar, en tafir hafa orðið vegna þess að skipta þurfti um verktaka. 

Eins og fram kom í fyrri umfjöllun Eyjafrétta í maí síðastliðnum hefur gönguslóði upp Heimaklett verið talinn forgangsverkefni til lagfæringar. Þar kom fram að slóðinn væri orðinn mjög illa farinn og að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefði veitt verkefninu rúmlega ellefu milljóna króna styrk. 

Í nýlegu svari Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, við fyrirspurn Eyjafrétta kemur fram að framkvæmdir hafi hafist í sumar með endurnýjun trappa og stiga. 

„Við byrjuðum á að endurnýja tröppur/stiga í sumar,“ segir Brynjar. „Við fengum aðila til að skoða hvaða úrbætur væru í boði á gönguleiðinni. Illa gekk að ná aftur sambandi eða fá svör eftir ítrekaðar tilraunir. Við þurftum að leita aðstoðar hjá öðrum aðilum og því tefjast þessar framkvæmdir.“ 

Samkvæmt svari Brynjars stendur til að halda áfram með endurbætur á gönguleiðinni þegar nýr verktaki hefur verið fenginn til verksins og aðstæður leyfa. 

Gönguslóði Heimakletts hefur lengi verið talinn mikilvægt öryggisatriði vegna fjölda gesta sem sækja klettinn heim, og vonir standa til að verkið fái nú loks framgang. 

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.