Heimilistónar stefna á Eldheima í Vestmannaeyjum sjötta maí nk. Hin stórskemmtilega kvennahljómsveit Heimilistónar er skipuð fjórum af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar. Elva Ósk Ólafsdóttir, Vígdís Gunnarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Ólafía Hrönn eru ekki bara leikkonur heldur líka söngkonur og hljóðfæraleikarar.
Þær slógu í gegn árið 2018 með þátttöku sinni í undankeppni Eurovision söngvakeppninnar með lagið “Kúst og fæjó”. Það verður tekið ásamt öðrum slögurum sem sveitin hefur gert að sínum og allir þekkja. Og efni tengt Vestmannaeyjum. Einnig má búast við leynigestum eins og tíðkast á tónleikum sveitarinnar.
Húsið opnar kl: 20:00 og tónleikar hefjast kl: 21:00.
Miðasala og borðapantanir í Eldheimum – Sími: 4882700 og miðaverð: 3900 kr.
Fréttatilkynning.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst