Heimir og lærisveinar unnu Katar í vináttulandsleik
Heimir Hallgrímsson.

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu í fótbolta fengu Katar í heimsókn í vináttulandsleik í Dublin í kvöld. Katar er í fullum undirbúningi fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði en Írlandi mistókst að vinna sér sæti á mótinu, eftir tap í vítuspyrnukeppni gegn Tékkum í umspili.

Nathan Collins kom heimamönnum í 1-0 á 5. mínútu leiksins þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf Jack Moylan. Katar léku einum manni fleiri nánast allan seinni hálfleikinn en Jack Moylan, leikmaður Írlands, fékk rautt spald undir lok fyrri hálfleiks. Almoez Ali, leikmaður Katar, fékk að líta rauða spjaldið þegar rúmlega tíú mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og var því jafnt í liðum lokamínúturnar en mark Collins reyndist eina mark leiksins.

Írland mætir Kanada í öðrum vináttulandsleik 5. júní, í Montréal í Kanada.

 

Nýjustu fréttir

Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.