Í dag fer fram síðasta umferð Olísdeildar kvenna þennan veturinn. Fyrir leiki dagsins er ÍBV í þriðja sæti deildarinnar, með tveggja stiga forskot á Fram, sem er í þriðja og tveimur stigum á eftir Val, sem er í öðru sæti. Fram getur enn stolið þriðja sætinu af ÍBV með því að leggja Hauka að velli en ÍBV þyrfti þá að tapa á heimavelli gegn hinu Hafnarfjarðarliðinu, FH. Ef allt væri eðlilegt, þá ætti ÍBV að vinna FH en eins og alþekkt er, þá er ekkert öruggt í íþróttum. Leikur ÍBV og FH hefst í gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar klukkan 13:30.
Ef allt fer að óskum og ÍBV vinnur FH, þá mætir ÍBV að öllum líkindum FH í 8-liða úrslitum. ÍBV getur náð Val að stigum en ekki komist upp í annað sætið þar sem Valur hafði betur í innbyrðis viðureignum liðanna í vetur. �?rslitakeppnin hefst svo 6. apríl.