Helga Sigrún ráðin í stöðu deildarstjóra
Helga Sigrún Ísfeld Þórsdóttir

Vestmannaeyjabær hefur valið Helgu Sigrúnu Ísfeld Þórsdóttur í stöðu deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála. Alls sóttu sex umsækjendur um en einn dró umsókn sína til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum.

Helga Sigrún lauk B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræði með áherslu á yngri barna svið árið 2003, Dipl.Ed. gráðu í uppeldis og menntunarfræði með áherslu á sérkennslu árið 2008 og M.Ed. gráðu í sérkennslufræðum árið 2015. Hún hefur leyfisbréf til að nota starfsheitið leik- og grunnskólakennari auk framhaldskólakennari í sérkennslu. Helga Sigrún hefur starfað sem kennsluráðgjafi á Skólaskrifstofu Vestmannaeyja frá árinu 2020. Áður var hún fagstjóri í íslensku og sérkennari við Grunnskóla Vestmannaeyja og umsjónarkennari og sérkennari á yngsta stigi við Smáraskóla í Kópavogi.

Það er mat Vestmannaeyjabæjar að þekking og reynsla Helgu Sigrúnar falli vel að þeim verkefnum og hæfnisþáttum sem tilgreindir voru í starfsauglýsingunni. Helga Sigrún hefur menntun og reynslu sem nýtist í starfinu. Hún býr yfir miklum leiðtogahæfileikum, drifkrafti og frumkvæði sem mun koma að gagni við að leiða áframhaldandi umbætur hjá Vestmannaeyjabæ. Helga Sigrún býr jafnframt yfir brennandi áhuga á fræðslu- og uppeldismálum auk skipulagshæfni. Reynsla hennar af kennslu, kennsluráðgjöf og ýmsum umbótaverkefnum í skólastarfi kemur til með að nýtast í starfi.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.