Helgarskákmót og afmælisblað í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja
Skák Lagf 25
Þekkingarsetur Vestmannaeyja verður vettvangur afmælismóta Taflfélags Vestmannaeyja þegar félagið fagnar 100 ára afmæli sínu í lok ágúst.

Þann 29. ágúst næstkomandi verða liðin 100 ár frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja (TV). Í tilefni þessara merku tímamóta stendur félagið fyrir tveimur öflugum skákmótum helgina 29.–30. ágúst í Vestmannaeyjum.

Atskákmót verður haldið laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00–17:30. Teflt verður með tímamörkunum 15 mínútur á skák auk fimm sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Sunnudaginn 30. ágúst kl. 13:00–16:00 fer síðan fram hraðskákmót með tímamörkunum fimm mínútur á skák auk þriggja sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Þetta eru algeng tímamörk á skákmótum, þó nokkuð rýmri en víða tíðkast.

Mótin verða haldin á opna svæðinu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja á 2. hæð við Ægisgötu 2.

Um verður að ræða opin mót þar sem þátttaka er öllum heimil. Ekkert þátttökugjald verður innheimt og verðlaun verða afhent að mótum loknum. Taflfélag Vestmannaeyja hefur áður haldið þrjú vel heppnuð atskákmót í Þekkingarsetrinu; Beddamótið árið 2019, Pallamótið árið 2021 og 50 ára goslokamótið árið 2023. Aðstaðan þar þykir með miklum ágætum. Skráning á afmælismótin hefst í næstu viku á skak.is.

Gefa út afmælisblað

Í tilefni af aldarafmælinu mun félagið jafnframt gefa út veglegt afmælisblað, bæði í prentaðri útgáfu og á vef. Blaðið kemur út nokkrum dögum fyrir afmælismótin og verður þar farið yfir sögu félagsins, starfsemi þess í gegnum tíðina og birtar greinar eftir nokkra höfunda.

Mótahaldið og útgáfan eru kostnaðarsöm verkefni og hyggst félagið leita til fyrirtækja eftir stuðningi og afmæliskveðjum til að standa straum af útgjöldum.

Íslandsmeistarar á afmælisárinu

Afmælisárið hefur þegar reynst Taflfélagi Vestmannaeyja einstaklega eftirminnilegt. Í mars varð skáksveit félagsins Íslandsmeistari í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga í fyrsta sinn í sögu félagsins. Sveitin tapaði fyrstu tveimur umferðunum en vann síðan átta umferðir í röð og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með hálfs vinnings forskoti á næstu sveit.

Árangurinn er einstakur og byggir á öflugri liðsstjórn, sterkum hópi innlendra og erlendra skákmanna og góðum stuðningi styrktaraðila, bæði í Vestmannaeyjum og annars staðar á landinu.

Félagið átti áður um árabil sæti í efstu deild og hafði nokkrum sinnum verið nærri því að vinna titilinn. Í tilefni af 100 ára afmælinu var ákveðið að gera sérstaka atlögu að Íslandsmeistaratitlinum og sú ákvörðun skilaði tilætluðum árangri.

Auk meistaraliðsins í úrvalsdeild hefur Taflfélag Vestmannaeyja einnig verið með tvær sex manna sveitir í 4. deild Íslandsmótsins, þar sem samkeppnin er jafnan mikil.

Öflugt starf í tvo áratugi

Taflfélag Vestmannaeyja hefur í rúm tuttugu ár haft aðsetur að Heiðarvegi 9. Vestmannaeyjabær gerði félaginu kleift að eignast húsnæðið með samningi sem tryggði rekstrargrundvöll þess.

Félagið hefur jafnframt staðið að öflugri skákkennslu fyrir börn um áratugaskeið. Kennslan hefur farið fram bæði í skákheimili félagsins og í Grunnskóla Vestmannaeyja, segir í frétt frá Taflfélagi Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Helgarskákmót og afmælisblað í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Mía Mekkín
Erna og Súsanna – Fjölbreytt Goslokahátíð að vanda
Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Komnir í þriggja vikna stopp: „Menn njóta þess í botn”
Frumraun Ennisrakaðra á spænsku
Þegar siðareglum er beitt til að forðast umræðu
Goslok: dagskrá föstudags
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.