Herjólfur er fjölskylduvænn vinnustaður
9. júní, 2025

Það er heldur hráslagalegt veðrið þegar blaðamaður bankaði upp á hjá Ólöfu Maren Bjarnadóttur og Páli Eiríkssyni á heimili þeirra í Foldahrauninu. Þar búa þau með tveimur börnum sínum, Ástrós Berthu og Arnóri Breka. Austan kæla og þokuslæðingur á meðan sól og blíða var annars staðar á landinu. Hún Akureyringur en hann innmúraður Eyjamaður. „Ég er að klára þriðja stig í skipstjórnarnámi sem heitir D-stig í dag og er kominn með ótakmörkuð réttindi í því bóklega en vantar tíma á sjó til að fá full réttindi nema á varðskip og allt sem því fylgir sem er í raun fjórða stigið,“ segir Páll. „Ég veit ekki hvort maður á eftir að spreyta sig á varðskipadeildinni en þar er ekki kennt nema að Landhelgisgæslan biðji um það.“ Páll hefur allan sinn sjómannsferil verið á Herjólfi og nú vantar hann tíma sem annar stýrimaður til að uppfylla öll skilyrði og það er að hafast. „Ég er búinn að vera annar stýrimaður frá því í janúar í fyrra. Þegar tilsettum tíma á sjó er náð get ég farið sem fyrsti stýrimaður og næsta skref eru skipstjóraréttindi. Það er ekki mikið eftir í fyrsta stýrimanninn og ég ætla að sækja um þegar ég verð kominn með skírteinið í hendur.“ Páll byrjaði sem háseti á Herjólfi 2019, þá 18 ára en er að verða 24 ára núna. „Mér hefur alltaf líkað vel á Herjólfi sem er gott skip. Vinnutíminn hentar mér vel. Erum viku á sjó, tökum fyrri part dags frá sex til fimm, þá kemur vikufrí og tökum svo kvöldvaktir í viku og aftur í frí. Þetta er fjölskylduvænt,“ segir Páll og Ólöf tekur undir það.

Stór vinnustaður

Herjólfur er stór vinnustaður. Á veturna eru tíu um borð og fara upp á fjórtán á sumrin. „Það er fjórföld áhöfn þannig að það eru lágmark 40 fastráðnir en geta farið upp í 56.“ Hver finnst þér helsti kosturinn við Herjólf? „Þetta er eins og ég sagði áðan, fjölskylduvænt. Þú ert ekki í burtu í marga daga og sefur heima á hverri nóttu. Þægilegur vinnutími og gott fólk sem maður vinnur með. Herjólfur gott sjóskip og fer vel með mann.“ Rekstur Herjólfs krefst margra manna með réttindi, bæði í brú og vél. Það eru þrír með skipstjórnarréttindi um borð og tveir vélstjórar. „Þannig að réttindamenn eru 18 í heildina og margir koma af f iskiskipflotanum. Finnst gott að breyta til eftir að hafa verið lengi á sjó á fiskiskipum,“ segir Páll en næst berst talið að Landeyjahöfn sem ekki hefur staðist væntingar. „Það er alltaf leiðinlegt að fara í Þorlákshöfn ekki síst fyrir farþega. Hvað er til ráða? Ég veit það ekki en eflaust eru til lausnir sem geta fjölgað dögum sem fært er í Landeyjahöfn ef menn nenna að standa í því.“ Páll segir farþega yfirleitt þakkláta en alltaf séu einhverjir sem eru það ekki. „Það er kannski mest þegar reynt er að troða sem flestum bílum um borð en við reynum eins og við getum. Ekki síst ef um síðustu ferð er að ræða,“ segir Páll.

Bikarmeistarinn Ólöf

Ólöf vann hug og hjörtu Eyjamanna þegar henni var nánast hent í markið í úrslitaleik bikarkeppninnar 2023 þar sem Eyjakonur stóðu uppi sem Bikarmeistarar eftir sigur á Val „Það var mjög óvænt og Ástrós ekki nema sjö mánaða. Ég var varamarkmaður og átti alls ekki von á að fara inn á. Svo fær Marta markmaður rautt spjald og ég varð að gera eitthvað. Var lítið búin að spila en þetta hafðist. Sem betur fer,“ segir Ólöf og hlær. Stressuð? Já. Það sést á myndum að ég var algjörlega hvít í andliti. Þetta gekk og þetta er minn fyrsti bikarmeistaratitill,“ segir Ólöf sem spilaði áður með KA/Þór á Akureyri. „Ég er enn að æfa, byrjaði aftur fyrir liðið tímabil eftir að hafa átt seinna barnið mitt þannig að þetta varð smá pása en ég hef verið í fæðingarorlofi frá því í mars í fyrra. Er í námi í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Á eitt ár eftir. Það eru tvær staðarlotur á önn, fjórar á vetri og þá er gott að eiga fjölskyldu fyrir norðan.“ Páll er kominn af Þingholtsfjölskyldunni í móðurætt sem ásamt föðurfjölskyldunni er fjölmenn í Vestmannaeyjum. „Mér fannst það ekkert mál því sjálf er ég úr stórri fjölskyldu þannig að þetta er bara gaman. Er langoftast ánægð í Eyjum en ekki þegar ég þarf að fara í Þorlákshöfn. Er mjög sjóveik. Fæ alltaf koju, ligg og vonast til að æla ekki,“ segir Ólöf en hvað sér Páll framundan? „Ég verð á Herjólfi, alla vega til að byrja með en maður veit aldrei. Langar kannski að breyta til en ekki á skemmtiferðaskip, ekki strax en væri alveg til í að prófa f iskveiðar,“ segir Páll aðspurður. „Það er svo leiðinlegur vinnutími á skemmtiferðaskipunum en gæti verið gaman að prófa. Vinna í tíu vikur og frí í tíu. Valgeir, bróðir pabba hefur í tvö ár verið á skemmtiferðaskipum og líkar mjög vel. Hann er heppinn að vera á skipi sem siglir við Ísland í sumar. Fer hringinn og kemur m.a. við í Vestmannaeyjum,“ segir Páll en að endingu var Ólöf spurð um muninn á veðri á Akureyri sem bauð upp á yfir 20 stiga hita dag eftir dag þegar viðtalið var tekið. „Ég veit ekki hvort það er betra á Akureyri svona heilt yfir en vindurinn í Vestmannaeyjum er ekki beint næs. Það getur gustað á Akureyri en ekki svona mikið og er fínt á sumrin,“ voru lokaorðin að þessu sinni.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.