Herjólfur er kominn heim
Herjólfur við Bjarnarey. Mynd Óskar Pétur Friðriksson.

Nýi Herjólfur er nú kominn heim til Vestmannaeyja. Á morgun mun samgönguráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson afhenda Vestmannaeyingum nýja ferju fyrir samgöngur milli lands og Eyja. Af því tilefni verður efnt til formlegrar móttökuathafnar í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum. Athöfnin hefst kl. 14:15 með ræðum samgönguráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar, formanni bæjarráðs og fulltrúa Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Prestur Landakirkju mun blessa skipið og forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir formlega nefna það.

Í framhaldi verður skipið bæjarbúum og öðrum gestum til sýnis. Boðið verður upp á veitingar, skemmtiatriði o.fl. milli kl. 14:30 og 16:00. Sunnudaginn 16. júní verður skipið jafnframt til sýnis frá 16:00 til 18:00.

Bæjarbúar og aðir gestir eru hvattir til að koma niður á bryggju, gera sér glaðan dag og njóta tímamótanna.

 

Nýjustu fréttir

Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.