Herjólfur III gæti orðið haffær í lok júlí
Deployment test á björgunarbúnaði fyrirhugað á mánudag – dýpi í Landeyjahöfn sagt gott og dýpkun fyrirhuguð eftir um tvær vikur
Herjólfur III. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Herjólfur III gæti orðið tilbúinn til siglinga fyrir lok júlímánaðar gangi áætlanir eftir. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er vinna við skipið vel á veg komin.

Á mánudag er fyrirhugað að framkvæma deployment test á björgunarbúnaði skipsins. Prófið felst í því að björgunarbúnaðurinn er leystur út, eða „sprengdur út“, til að sannreyna að hann starfi rétt. Jafnframt segir Vegagerðin að dýpi í Landeyjahöfn sé gott og að stefnt sé að dýpkun innan hafnarinnar eftir um tvær vikur.

Sólveig Gísladóttir, sérfræðingur á samskiptadeild Vegagerðarinnar, segir að þeir varahlutir sem beðið hafi verið eftir séu loks komnir til birgja. Næsta skref sé fyrrnefnt deployment test, þar sem björgunarbúnaður skipsins er prófaður.

„Ef ekkert óvænt kemur upp á á lokametrunum má vænta þess að unnt verði að óska eftir haffæri á skipið og það verði tilbúið fyrir lok júlímánaðar,“ segir Sólveig.

Um stöðuna í Landeyjahöfn segir Sólveig að samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingum á hafnadeild Vegagerðarinnar sé dýpi í og við höfnina gott um þessar mundir. Stefnt sé að því að ráðast í dýpkun innan hafnarinnar eftir um tvær vikur.

Nýjustu fréttir

Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.