Herjólfur snerist í innsiglingunni í Landeyjahöfn
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur til rannsóknar atvik sem varð í Landeyjahöfn 28. nóvember síðastliðinn. Herjólfur var þá að koma þar til hafnar. vest-suðvestan 12-16 m/s vindur var við höfnina, ölduhæð 2,1 m og meðalstraumur 1,4 sjómílur.
�??�?egar skipið nálgaðist innsiglinguna fékk það óvænta öldu á sig og snerist til um 35° til bakborða. Skipstjóra tókst að rétta skipið á stefnu á milli garðanna en þá snerist það allt í einu aftur um 35° í sama borð og stefndi á vestari garðinn. Með snarræði tókst skipstjóra að rétta skipið og stýra því inn í höfnina. Talið er að afturendi skipsins hafi verið u.þ.b. 7 metra frá því að rekast á garðinn,�?? segir í tilkynningu á heimasíðu rannsóknarnefndarinnar. �?ess má geta að Herjólfur er 70,7 metra langur og 16 metra breiður. Málið hefur ekki verið tekið fyrir hjá rannsóknarnefndinni.
�?etta er í fjórða skiptið sem atvik tengt siglingu Herjólfs í Landeyjahöfn hefur verið tilkynnt til Rannsóknarnefndar sjóslysa og síðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa frá því Landeyjahöfn var tekin í notkun árið 2010.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.