Eins og áður hefur komið fram, lék karlalið ÍBV gegn Portsmouth á heimavelli þeirra síðarnefndu, Fratton Park í gær. Lokatölur urðu 2:1 fyrir Portsmouth en þjálfari ÍBV, Hermann Hreiðarsson fékk hlýjar móttökur þegar hann kom inn á í lið ÍBV. Hann skipti svo yfir og lék með Portsmouth síðustu fimm mínútur leiksins. Hægt er að sjá myndband úr leiknum hér að neðan.