Hið árlega Guðlaugssund var haldið í gær og í morgun
Magnús Kristinsson synti 6 km í morgun og hefur nú 17 sinnum synt sundið eða samtals 102 km. Hérna er Magnús með Natalíu Lóu barnabarni sínu sem vaknaði snemma til að synda síðustu metrana með afa sínum.

Nú eru 35 ár síðan Guðlaugur Friðþórsson vann það mikla afrek að synda í land eftir hræðilegt sjóslys, eða um 6 km.

Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum undir stjórn Friðriks Ásmundssonar hóf fljótlega að minnast þessa atburðar með því að nemendur syntu í Sundlauginni okkar boðsund. Síðar fóru nokkrir einstaklingar að synda þetta til að minnast öryggismála sjófarenda.

Alan Friðrik Allison sér um að halda utan um sundið og hefur gert það undanfarin ár. Alan sagði Óskari Pétri Friðrikssyni ljósmyndara Eyjafrétta að það hefði komið betur út fyrir suma aðila að synda í gær og aðra í dag, þess vegan væri sundið núna í tvo daga.

Um hálf sjö í morgun voru 9 manns sem syntu og þar var aldursforsetinn Bjarni Jónasson fyrverandi flugmaður en hann er kominn á níræðis alduri og ætlaði að synda nokkrar ferðir. Bjarni hefur margsinnis mætt í Guðlaugssundið og synt ár eftir ár.

Nýjustu fréttir

Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi 
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.