Hinir raunverulegu valmöguleikar
Ekki verður annað talið en að skjálfti sé hlaupinn í sjálfstæðismenn fyrir kosningarnar 26. maí næstkomandi. �?r þeirra röðum ryðst nú fram á ritvöllinn leiðtogi D listans, fullur auðmýktar og stolts af afrekum undanfarinna ára, en tekur þó jafnframt fram að hér fari allt á versta veg fái þeir ekki endurnýjað umboð kjósenda og hreinan meirihluta. Sú goðsögn virðist enn á lífi, að minnsta kosti hjá þeim sjálfum, að enginn geti farið með stjórn nokkurs sveitarfélags nema þeir sjálfir. Auðmýkt og stolti er blandað við hótanir og heimsendaspár. Ekkert er nýtt undir sólinni hvað þetta varðar.
Sjálfstæðismenn ganga jafnvel svo langt í málflutningi sínum að margt af því sem þeir nú hrósa sér fyrir hafa verið hagsmunamál Eyjalistans á undanförnum árum og í sumum tilvikum er staðreyndin sú að meirihlutinn lagðist beinlínis gegn þeim málum sem nú eru dregin fram honum til tekna. Fyrr í vor sagði einn frambjóðandi sjálfstæðismanna samgönguráðherrann skreyta sig með stolnum fjöðrum, eins og frægt varð. Um það hvaða fjaðrir nú eru notaðar skal hver dæma fyrir sig.
En það skrýtnasta í málflutningi sjálfstæðismanna nú er að leiðtogi þeirra virðist fyrir fram útiloka allt samstarf við aðra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn fari ekki í neitt samstarf. Ein ráðlegging úr stjórnmálafræðinni, frá manni sem er að taka þátt í sínum fyrstu kosningum til manns sem hefur mikla reynslu væri á þessa leið: við skulum ekki útiloka neitt fyrir fram. Við skulum leyfa bæjarbúum að kjósa og segja hug sinn, og svo skulum við meta stöðuna. Fyrir mitt leyti, og okkar hjá Eyjalistanum, er ekkert einu sinni farið ræða mögulegt meirihlutasamstarf. �?að er einfaldlega ekki á dagskrá.
Hins vegar er ég sammála bæjarstjóranum um eitt: þó valmöguleikarnir séu þrír, eru þeir í raun aðeins tveir. �?að er einn Eyjalisti, sem stendur fyrir ákveðnar breytingar og svo eru það tveir sjálfstæðisflokkar. Og ef við horfum til baka og skoðum söguna, ekki bara hér í Vestmannaeyjum heldur um allt land, þá er það þannig að yfirleitt líður ekki á löngu þar til jafnvel dýptsti klofningur er barinn til hlýðni. �?á skiptir ekki máli hvort það er hinn hefðbundni sjálfstæðisflokkur eða hinn nýstofnaði byltingararmur hans. Valið stendur því á milli þessa tveggja kosta.
Njáll Ragnarsson

Nýjustu fréttir

Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.