„Hinn fallegasti fiskur“
sjomadur_bergey_opf_22
Trollið tekið inn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

„Við fengum aflann á Öræfagrunni og í Hornafjarðardýpinu og það var gott veður allan túrinn að undanskildum einum sólarhring. Aflinn er mestmegnis ufsi og ýsa og það er einkar ánægjulegt að ufsinn láti sjá sig, en það er langt síðan hann hefur fengist á þessum slóðum. Þetta er hinn fallegasti fiskur og ufsinn er góður milliufsi eins og oft er sagt,“ sagði Egill Guðni í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að túrinn hjá þeim hefði verið í rólegri kantinum. „Aflinn hjá okkur er að mestu þorskur og ýsa, aðeins ufsi með. Það var víða veitt í túrnum. Við byrjuðum á að taka þorsk og ýsu á Víkinni, síðan var haldið á Ingólfshöfðann og þar fékkst þorskur. Þá lá leiðin í Sláturhúsið og á Stokksnesgrunn og þaðan vestur á Öræfagrunn. Við enduðum svo á Víkinni. Þetta var tiltölulega þægilegt og veður var gott fyrir utan einn bræludag,“ sagði Jón.

Bergur mun halda á ný til veiða annað kvöld og Vestmannaey á fimmtudagskvöld.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.