Hjörtur í ársleyfi

Sigurður Böðvarsson yfirlæknir göngu- og lyflækningadeildar mun sinna starfi framkvæmdastjóra lækninga í fjarveru Hjartar Kristjánssonar sem er kominn í ársleyfi. Frá þessu er greint á vef HSU.

Sigurður hefur starfað á HSU síðan 1. desember 2018. Þar áður starfaði hann sem sérfræðingur í krabbameinslækningum í Gundersen Health System, La Crosse í Wisconsin, Green Bay Oncology, Green Bay, Wisconsin og sem sérfræðingur í krabbameinslækningum við Landspítala. Sigurður er sérfræðingur í krabbameinslækningum og hefur áralanga reynslu af meðferð krabbameinssjúklinga, rannsóknum, kennslu og stjórnun, var um tíma formaður Læknafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Læknafélags Íslands. Hann lauk meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Bifröst árið 2009.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.