Hlaðvarpið Loðnufréttir í loftið

Í vikunni fór í loftið hlaðvarpið Loðnufréttir í umsjá Ingva Þórs Georgssonar ritstjóra Loðnufrétta.is

Ingvi Þór Georgsson

“Í ljósi þess að vertíðin í ár verður mun skemmri en í fyrra sökum úthlutunar var ákveðið að bregða á það ráð að “hita aðeins upp” í staðinn og búa til 5-6 þætti fyrir þau allra hörðustu en hugmyndin er að sjálfsögðu líka að reyna að fá fleiri til að fylgjast með.” segir Ingvi

Í fyrsta þætti er tekin létt yfirferð á vertíðinni og síðan viðtal við Geir Zoega skipstjóra á Polar Amaroq en hann hefur getið af sér gott orð sem skipstjóri hér heima og í Grænlandi. Í þætti tvö var farið yfir verðmætasköpun síðustu vertíðar, aflatölur og spáð í spilin fyrir komandi vertíð ásamt Arnari Þór Ólafssyni. Næstu þættir sem líta dagsins ljós eru samtöl við fólk sem stýrir hátæknivinnslum, markaðsmálum og tengdum iðnuðum til að kynnast því frá öllum hliðum hvernig loðnan hefur áhrif á efnahaginn, þjóðarsálina og sjávarútveg. Ísfell er helsti bakhjarl Loðnufrétta í ár og mun starfsmaður þeirra einnig koma og fræða hlustendur um veiðarfærin og af hverju helstu spekingar velta vöngum yfir hvort betra væri að vera á loðnuflotvörpu eða nót við veiðarnar.

Fyrstu tveir þættirnir eru komnir í loftið og geta því loðnuáhugamenn sem bíða í örvæntingu eftir að fara að sjá og heyra sögur af vertíðinni svalað þorsta sínum með því að hlusta á hlaðvarp Loðnufrétta.

Ingvi Þór hefur undanfarna 12 mánuði halda úti hlaðvarpinu Pyngjan sem fjallar um ársreikninga fyrirtækja og viðskipti almennt ásamt Arnari Þór Ólafssyni. Það lá því beinast við að reyna að fjalla á sama máta um loðnuna og sjávarútveg eins og til tókst með því að fjalla um ársreikninga og viðskipti.

Hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum, t.d. á Spotify.

https://open.spotify.com/episode/0YVZv9Lj9cHSMiMuD44YzA?si=-nJRNA1jTx6CXLboQtKWFA

Nýjustu fréttir

Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur
Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.