Hluthafi í Laxey skoðar að opna fóðurverksmiðju á Íslandi

Mynd: Óskar Jósúason

Norski fóðurframleiðandinn Skretting Norway kannar nú möguleikann á því að setja upp fóðurverksmiðju á Íslandi fyrir laxeldi. Þetta kemur fram í Fiskifréttum  þar sem haft er eftir Haarvard Walde, forstjóra Skretting Norway, að Ísland gæti í framtíðinni orðið þriðji stærsti laxaframleiðandi heims.

„Þetta mun taka tíma, en möguleikarnir eru klárlega til staðar. Ef það er einhver staður í heiminum með sterka kosti fyrir góða starfsemi, þá er það Ísland,“ segir Walde í samtali við Intrafish.

Walde segir að Skretting fylgist vel með þróun landeldis á Íslandi. Fyrirtækið hefur þegar komið sér upp vöruhúsi í Þorlákshöfn til að styðja við landeldisfyrirtæki sem þar starfa. Nú er fiskafóður flutt inn vikulega, en þegar framleiðsla á Íslandi eykst nægilega mikið, gæti komið til greina að reisa fóðurverksmiðju hér á landi. Skretting er í eigu hollenska fyrirtækisins Nutreco, sem er stærsti framleiðandi fiskafóðurs í heiminum og hluthafi í Laxey.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.