Hlutu viðurkenningu hins opinbera
bessastadir-1536x940-1
Forseti Íslands tók á móti verðlaunahöfum á Bessastöðum. Ljósmynd/Samband íslenskra sveitarfélaga

Þrjú verkefni hlutu Nýsköpunarverðlaun hins opinbera árið 2024 sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur á sviði nýsköpunar í opinberri starfsemi.

Alls bárust vel á fjórða tug tilnefninga en dómnefnd skipuðu fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytisins, segir í frétt á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Reykjavíkurborg og Vestmannaeyjabær hlutu sameiginlega viðurkenningu fyrir verkefni varðandi útboð og innleiðingu á velferðartæknilausn sem hefur gert heilbrigðis- og félagsþjónustuveitendum á velferðarsviði sveitarfélaganna kleift að stórefla upplýsingamiðlun sín á milli og hámarka skilvirkni við veitingu fjölbreyttrar þjónustu í heimahúsum. Þjónustunotendur hafa einnig öðlast betri yfirsýn á skipulagi sinnar þjónustu.

Sveitarfélagið Árborg hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framfaradrifinn metnað á sviði umbóta og stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins. Í erfiðu árferði hefur Árborg lyft grettistaki í stafrænni umbreytingu með fjölbreyttum stafrænum umbótaverkefnum sem hafa skilað bættri yfirsýn stjórnenda á verkefnin og dregið úr álagi starfseminnar.

Stafræn málsmeðferð dánarbúa

Þá fengu Sýslumenn viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, og sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa. Alls voru 92% útgefinna dánarvottorða í lok árs 2023 stafræn, en voru 26% í byrjun sama árs. Sýslumenn fá helstu lykilupplýsingar á borð við skattframtöl og ökutækjaeignir sjálfkrafa í ferlinu, aðstandendur geta fyllt allar yfirlýsingar og umsóknir út stafrænt, sem hefur gert umsóknarferlið einfaldara og fljótlegra.

Nýsköpunardagur hins opinbera fer fram 15. maí

Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt í aðdraganda Nýsköpunardags hins opinbera sem fer fram 15. maí næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica. Þar verður fjöldi erinda með sérstaka áherslu á gervigreind og hvernig hún getur hjálpað við að leysa ýmsar áskoranir í rekstri og þjónustu. Frekari upplýsingar um Nýsköpunardaginn.

reykjavikurborgrett
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og Vestmannaeyjabæjar við afhendinguna.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.