Sigurgeir Jónsson kenndi Sigurjóni í Stýrimannaskólanum – Þar náðí hann góðum árangri sem hann þakkar m.a. Sigurgeiri – „Slíkt gleður hjarta gamals manns“
Það er fátt sem yljar gömlum kennara meira en að heyra frá fyrrverandi nemanda sem minnist skólaáranna með hlýhug. Það fékk Sigurgeir Jónsson, sem kenndi í nær hálfa öld, að reyna þegar hann las viðtal Eyjafrétta við gamlan nemanda sinn, Sigurjón Ingvarsson. Þar þakkaði Sigurjón meðal annars Sigurgeiri fyrir að hafa gefið sér tækifæri á sínum tíma.
Í þjóðhátíðarblaði Eyjafrétta var rætt við Sigurjón Ingvarsson, byggingameistara og fyrrverandi skipstjóra, um lífshlaupið, skólagönguna og þátt hans í uppbyggingu verknáms við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Þar sagði Sigurjón meðal annars frá því hvernig Stýrimannaskólinn í Eyjum gaf honum tækifæri þegar hefðbundið skólanám hafði ekki átt sérstaklega vel við hann.
Einn þeirra sem Sigurjón þakkaði sérstaklega var Sigurgeir Jónsson, fyrrverandi kennari hans í Stýrimannaskólanum. Sigurgeir gladdist þegar hann las viðtalið og greinilegt er að hlý orð gamla nemandans snertu hann. Í kjölfarið skrifaði hann fallega færslu á Facebook.
„Sem gamall kennari í nær 50 ár nýt ég þess alltaf að hitta gamla nemendur sem sýna mér hlýhug og rifja upp gömul og góð kynni,“ skrifar Sigurgeir og segir slíkar stundir ómetanlegar og ylja gömlum manni um hjartaræturnar.

Sigurjón fór ekkert í felur með námsárangurinn á yngri árum í viðtalinu. Hann sagðist hafa verið með 1,5 í meðaleinkunn þegar hann lauk grunnskóla og alltaf verið í „tossabekk“.
Það breyttist þegar hann fékk tækifæri í Stýrimannaskólanum og Sigurgeir man vel eftir honum. „Sigurjón var í hópi þeirra sem komu í Stýrimannaskólann af áhuga og með ekki mjög háar einkunnir úr barnaskóla. En hann var fullur áhuga og kláraði sitt nám þar með ágætum.“
Sigurjón fór síðan til sjós og varð stýrimaður og skipstjóri áður en leiðin lá í húsasmíði. Þar hefur hann haslað sér völl og er í dag byggingameistari í Vestmannaeyjum. Hann hefur jafnframt átt stóran þátt í uppbyggingu verknáms við FÍV og þannig, ásamt öðrum, skapað ungu fólki tækifæri til að finna sína fjöl í lífinu.
Þar lokast ákveðinn hringur. Strákurinn sem sjálfur fékk tækifæri í Stýrimannaskólanum, þegar einkunnirnar sögðu ekki alla söguna, hefur á síðari árum barist fyrir því að aðrir fái sambærilegt tækifæri.
Sigurgeir segir Sigurjón gott dæmi um mann sem hefur unnið sig áfram af krafti og ekki látið slakt gengi fyrstu skólaáranna stöðva sig.
„Það er mér ánægjuefni þegar ég lít yfir farinn veg, að hafa fengið að aðstoða slíkt fólk á lífsleiðinni,“ segir Sigurgeir og bætir við: „Slíkt gleður hjarta gamals manns.“