Hlynur hljóp fimm kílómetra undir fjórtán mínútum
Hlynur Andrésson varð í nótt fyrsti Íslendingurinn til þess að hlaupa fimm kílómetra undir fjórtán mínútum en hann var að keppa fyrir skólann sinn í Eastern Michigan í Bandaríkjunum.
Hlynur og liðsfélagar hans í hlaupaliði Eastern Michigan háskólans í Bandaríkjunum voru að keppa á móti í Charlottesvilla í Virginíu í gær þegar Hlynur sló metið.
Hynur hljóp á 13:58.91 sekúndum og varð því, eins og fyrr segir, fyrsti Íslendingurinn í sögunni til þess að hlaupa fimm kílómetra á undir fjórtán mínútum og því á hann nú Íslandsmetið.
�?ess má geta að fyrr á árinu sló Hlynur einnig Íslandsmet í tíu kílómetra hlaupi en þá sló hann tæplega tíu ára gamalt met Kára Steins Karlssonar um tæpar átta sekúndur.
�?að er því ljóst að Hlynur á framtíðina fyrir sér og spurning hvort að fleiri met verði slegin á næstunni. www.visir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.