„Inni í klefa datt allt í dúnalogn. Þannig vil ég hafa það, tökum á því og erum svo vinir,“ segir Sigurður Bragason, fyrrum þjálfari og leikmaður ÍBV í viðtali við Ómar Garðarsson í Eyjafréttum um móralinn í liðinu og þann árangur sem þeir náðu. Í kjölfarið varð mesta hneyksli frá upphafi í vali íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins 2018.
Þar var bæði gengið fram hjá karlaliði ÍBV og Arnari Péturssyni þjálfara. Fundu heldur Íslending sem þjálfaði í Svíþjóð og hefur lítið heyrst eða sést til síðan. Lið ársins voru golfarar sem unnu áhugamanna mót á Englandi. Meiri gat svívirðan ekki orðið og síðan hefur sá sem þetta skrifar ekki horft á útsendingu frá afhendingunni.
Óskar öllum sem hafa fengið viðurkenningar til hamingju og þakkar þeim sem þó greiddu karlaliði ÍBV í handbolta og Arnari atkvæði. Hinir sitja uppi með skömmina og sýndu að góður árangur er ekki góður nema hann lendi á réttum stað.
Grafið djúpt eftir liði ársins
Sigurður tekur undir þetta og segir mikla pólitík hafa spilað inn í. „Það er pottþétt. Arnar náði besta árangri þjálfara í Íslands sögunni. Hann vann alla titlana og kom okkur í undanúrslit í Evrópukeppni. Kristján í Svíþjóð er örugglega fínn gaur og hefur gert það gott í Svíþjóð. Það var líka grafið djúpt eftir liði ársins. Fundu golflandslið sem varð „Evrópumeistari í golfi“ sem er bull og lygi. Þeir tóku þátt í móti úti í Skotlandi, tólf lið alls og fjögur frá Bretlandi en engir atvinnumenn,“ segir Sigurður og heldur áfram.
„Flott mót og þeir unnu en þeir voru ekki besta liðið. Við vorum besta liðið en málið var að við vorum villingar og þeim líkaði ekki við okkur,“ segir Sigurður og nefnir erjur hans og Tedda á tímabilinu. „Það vildu sumir að ég yrði rekinn sem ég skil en við sættumst strax. Ég útskýrði mitt mál en það var okkur ekki til sóma. Var þetta góð auglýsing fyrir ÍBV? Nei. Var ég stoltur af þessu sem pabbi? Nei. Hvorug ur saklaus en það tengdist ekki árangri okkar,“ segir Sigurður.
Sjá nánar í Eyjafréttum sem komu út í vikunni.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.