Hoffman með útgáfutónleika á Volcano á föstudagskvöld
Á morgun, föstudag ætlar Eyjahljómsveitin Hoffman að halda tvenna útgáfutónleika í Vestmannaeyjum. Hvorir tveggja tónleikarnir fara fram á Volcano Café en önnur Eyja­hljómsveit, Súr, mun hita upp. Fyrri tónleikarnir byrja klukkan 18.00 og eru fyrir alla aldurshópa. Miðaverð er einungis 500 krónur en auk laga af nýju plötu Hoffman, Your secrets are safe with us, munu eldri slag­arar fylgja með, t.d. Slor og skítur. Síðar sama kvöld eða klukkan 23.00 verða svo seinni tónleikarnir en þeir eru hugsaðir fyrir þá sem hafa aldur til að sækja vínveitinga­staðinn.

Nýjustu fréttir

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.