Höllin - Hið eina sanna jólahlaðborð Eyjanna 17. desember
Nú í nokkur ár hefur Höllin í samvinnu við Einsa Kalda haldið stórglæsilegt jólahlaðborð helgina fyrir jól. Nú ber laugardaginn þann upp á 17. desember og þann dag ættu allir að taka frá fyrir þessa frábæru skemmtun. Jólahlaðborðið hjá Einari Birni og hans starfsfólki hefur verið afar glæsilegt og við fullyrðum að þau gerast ekki mikið glæsilegri annarsstaðar. Á þriðja tug rétta munu verða í boði og skiptast í forrréttahlaðborð, kalt aðalréttahlaðborð, heitt aðalréttahlaðborð og að sjálfsögðu verður einnig boðið upp á gómsætt eftirréttahlaðborð. �?að verður því enginn svikinn af matnum. En þótt matur sé mannsins megin, þá má ekki gleyma því að til viðbótar verður boðið upp á sannkallaða jólatónleika.
Eyjalistamenn sjá um alla skemmtun og ný súpergrúppa skemmtir á balli Listamenn úr Eyjum hafa gjarnan skipað veglegan sess á þessu kvöldi, en nú í ár sjá þeir algjörlega um alla skemmtun. Við fáum nýja súpergrúppu, sem mun sjá um allt undirspil á jólatónleikunum, en þessa hljómsveit skipa Gísli Stefánsson gítar, Birgir Nielsen trommur, �?órir �?lafsson hljómborð, Kristinn (Diddi) Jónson bassi og Jarl Sigurgeirsson á kassagítar.
Hljómsveitarstjóri er Gísli Stefánsson. �?essi hljómsveit mun svo sjá um ballið ásamt Leó Snæ, sem mun sýna á sér glænýja hlið og ekki ólíklegt að hann breytist í sannkallaðan rokkhund þetta kvöld. Söngvarar á jólatónleikunum eru Leó Snær Sveinsson, Vilmar �?ór Bjarnason, Thelma Lind �?órarinsdóttir, Sara Renee Griffin og María Fönn Frostadóttir – allt saman frábærir söngvarar sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. �?að er því rík ástæða fyrir Eyjamenn og -konur að fjölmenna í Höllina þann 17. desember, borða góðan mat og lofa þessum frábæru tónlistarmönnum og -konum að syngja inn jólin. Allar nánari upplýsingar og miðapantanir eru hjá Tótu í síma 846-4086 og hjá Einari Birni í síma 698-2572.

Nýjustu fréttir

Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.