Horft af bæjarhólnum
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins brá sér upp á bæjarhólinn sinn rétt fyrir áramótin, skyggndist um og lagði mat á stöðuna í þjóðlífinu. Á Gamlársdag mætti hann síðan í þáttinn Kryddsíld og gerði grein fyri því hvers hann hefði orðið vísari með sjálfum sér þarna á bæjarhólnum. Niðurstaðan var einföld. Á Íslandi er allt í svo góð lagi að �??það þarf geðveiki til að sjá ekki hvað ástandið er gott,�?? svo notuð séu hans óbreyttu orð.
Á sama tíma og Bjarni mælir þessi orð er fróðlegt að skoða eftirfarandi aðstæður á Íslandi:
�?� Heilbrigðisþjónustan í landinu er á heljarþröm og komin að fótum fram vegna fjársveltis. �?etta þekkjum við vel hér í Vestmannaeyjum.
�?� Samgöngukerfið er fjársvelt, vegir víða ónýtir og viðhaldi ekki sinnt vegna fjársveltis, hvað þá að lagt sé í nauðsynlegar nýframkvæmdir.
�?� Landhelgisgæslan er að miklu leyti óvirk vegna niðurskurðar. �?ryggismál sjómanna og reyndar landsmanna allra eru þar með í molum.
�?� Menntakerfi landsins er í megnasta ólestri, skólar fjársveltir og uppbyggingu er ekki sinnt.
�?� Geysileg ólga er á vinnumarkaðinum. Sjómenn eru í verkfalli og fara fram á sanngjörn skipti.
�?� Lífeyrismál landsmanna eru í uppnámi.
�?annig mætti áfram telja. En Bjarni sér ekki þessar aðstæður þegar hann litast um af bæjarhólnum sínum. Hann getur því sannarlega glaðst með sjálfum sér og sínum. Hann getur glaðst yfir því að þeir sem eiga ómælda peninga þurfi ekki óttast að þeir verði notaðir til að standa straum af umbótum í landinu svo sem á þeim sviðum sem hér hafa verið gerð að umtalsefni.
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.