Hraðakstursbrotum fækkaði um 43% á Suðurlandi

Í liðinni viku voru 20 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt um vegi á Suðurlandi og af þeim voru 13 á ferðinni á svæðinu við Vík og Kirkjubæjarklaustur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi en 2.228 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt um umdæmið á liðnu ári en 3.924 árið á undan. Mestu munar þar um þann fjölda erlendra ferðamanna sem ekki skiluðu sér til landsins á síðasta ári.

“Rétt er að hafa í huga að árið 2018 voru 1.667 stöðvaðir vegna hraðakstursbrota og því er það stífa eftirlit sem við höfum verið að sinna að skila sér í þeim fjölda sem nú er undir.   Áfram verður haldið með umferðareftirlitið enda ljóst að með því að sinna því vel er lögreglan að bjarga mannslífum. Flest alvarleg slys í umferðinni eru tengd með einhverjum hætti hraðakstri eða ástandi ökumanna,” segir í dagbókarfærslunni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.