Hrygningarstoppið hefur áhrif

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu í Eyjum á mánudag. Bæði skip voru með fullfermi og afli beggja að mestu þorskur og ýsa. Bergur mun halda á ný til veiða um hádegisbil í dag og Vestmannaey í kvöld. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Jóns Valgeirssonar skipstjóra á Bergi og spurði frétta. “Við lönduðum á mánudag og síðan hafa bæði skip legið í höfn. Vertíðin er búin að vera góð en nú er verið að hægja á okkur. Það er talað um að nú verði einungis farnir tveir túrar í viku. Það er eðlilegt að hægt sé á. Hrygningarstopp er að hefjast á okkar hefðbundnu miðum og þá verður nauðsynlegt að fara austar. Í síðasta túr vorum við vestan við Eyjar í ágætis fiskiríi en í túrnum þar á undan var ýsa tekin á Víkinni og þorskur á Selvogsbankanum. Eftir að hrygningarstoppið tekur gildi verður helst farið austur á Síðugrunn. Ég held að menn geti verið mjög sáttir við veiðina að undanförnu og mér heyrist á mönnum að veiði hafi jafnvel verið að færast í aukana síðustu dagana,” segir Jón.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.