Lesandi Eyjafrétta kom við á ritstjórn í morgun og var óhress með umgengni hundaeigenda. Sagðist hann hafa gengið fram á hundaskít fyrir framan heimili sitt í morgun en hann gengur mikið um bæinn og finnst mikið um hundaskít á gangstéttum bæjarins. Flestir hirða upp eftir sína hunda en ekki þarf nema einn til að skemma fyrir hinum.