Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist strax á þessu ári og biðin sé þar með á enda. Hver eru svo viðbrögð okkar Eyjamanna. Fögnum við þessum mikla vilja til að bæta samgöngur? Grípum við tækifærið og sækjum fram? Sendum við frá okkur þau skilaboð að nú eigi að snúa við blaðinu og gera okkar frábæra bæ enn betri? Nei við Vestmanneyingar berjum í borðið og segjum ,,nei takk�?. Gerum ekkert fyrr en búið er að rannsaka alla möguleika á jarðgangnagerð jafnvel þótt flest bendi til að ekki sé vilji til að fara í þá framkvæmd.
Kosturinn við þetta er hinsvegar sá að nú verða væntanlega allir hamingjusamir. Við Vestmanneyingar erum alsælir með að geta rifist um jarðgöng næstu fimm árin eða svo og farið þá að huga að því hvað sé best að gera í stöðunni. Sunnlendingar og nærsveitungar eru hæstánægðir því nú fá þeir sennilega 5 milljarða í aukið fjármagn til að flýta framkvæmdum á breikkun Suðurlandsvegar. Sturla Böðvarsson og stjórnarbræður hans hæstánægðir að þurfa ekki að hlusta á vælið í Vestmanneyingum næstu árin á meðan verið er að rannsaka möguleikann á jarðgöngum. Sem sagt allir ánægðir nema þeir sem hugsa um það fyrst og fremst að bæta samgöngur eins mikið og mögulegt er og snúa við þeirri neikvæðu íbúaþróun sem hér hefur verið.
Mín skoðun er einföld, við höfum ekki efni á því að bíða lengi. Ef sú þróun heldur áfram að okkur sé að fækka um u.þ.b. 100 íbúa á ári þá verður íbúafjöldi í Vestmanneyjum eftir fimm ár 3500. Hvernig verður þjónustustigið í bænum okkar þá og störf hversu margra eru í hættu? Hvað verður um stofnanir svo sem: sjúkrahúsið, íþróttamiðstöðina, sýslumannsembættið, framhaldsskólann og svo margt fleira? �?g hef alltaf verið jarðgangnasinni nr 1, 2 og 3, en við höfum bara ekki efni á því að bíða svona lengi í þessari óvissu á meðan íbúum fækkar um u.þ.b. 100 á ári hverju.
�?g hef eins og svo margir reynt að fylgjast með umræðunni um jarðgöng og eftir því sem ég kemst næst eru kostnaðartölur um jarðgangnagerð á bilinu 14 til 90 milljarðar og virðist langur langur tími þangað til að menn verði sammála um niðurstöðu í því máli. Og jafnvel þótt kostnaðurinn væri í kringum 25 – 30 milljarðar þá hef ég ekki séð neinn stjórnmálaflokk lýsa því yfir að hann myndi þá styðja slíka framkvæmd.
�?g set fullt traust á þá sérfræðinga sem eru búnir að eyða ómældum tíma í rannsóknir á ferjulægi í Bakkafjöru og óttast ekki að það verði ekki hægt að sigla í nýja höfn sérhannaða fyrir ferjur. Fyrir mér er bakkafjara því góður kostur þótt hún sé vissulega næstbesti kosturinn. Við höfum ekki hreinlega ekki efni á að bíða á meðan íbúum fækkar um u.þ.b. 100 á ári.
�?g skora á okkar bæjarstjórn og þingmenn að hafa kjark og þor til að taka skynsamar ákvarðanir og láta ekki tækifærin renna frá okkur vegna þess að sumir hér í bæ sjá heiminn bara í gegnum mjótt rör og velja svo á hvað þeir horfa.
Sveinn Magnússon.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst