Hvað varð um manninn sem hún elskaði?
�??Hann hafði verið maðurinn í lífi mínu, með honum átti ég fallegustu og æðisgengnustu daga og nætur ævinnar á dögum undirliggjandi ótta og einræðisstjórnar þýska alþýðulýðveldisins. Af hverju hvarf hann fyrirvaralaust úr lífi mínu?�?�Af hverju heyrðist ekkert í honum eftir að múrinn féll? Hafði hann eitthvað að fela?�?? segir Kristín Jóhannsdóttir um bók sína, Ekki gleyma mér sem hún kynnir í Sagnheimum klukkan hálf sex á morgun, fimmtudag.
Kristín hélt til náms austur fyrir járntjald árið 1987. Sú vist átti eftir að marka hana fyrir lífstíð. Í tvo áratugi�?� sat hún á sér en gat svo ekki meir. Hafði maðurinn sem hún elskaði bara verið ómerkilegur Stasí-njósnari? Hvað með aðra vini sem hún eignaðist á þessum sögulegu tímum?
Kristín Jóhannsdóttir er forstöðumaður Eldheima �?�í Vestmannaeyjum. Hún var um langt árabil fréttaritari Ríkisútvarpsins í Berlín. �??Ekki gleyma mér�?� er áhrifamikil minningasaga þar sem hún gerir upp heitar nætur í köldu stríði í einræðisríki á fallanda fæti. �?etta er hrífandi bók sem dregur upp áleitna mynd af veröld sem var og lætur engan ósnortinn,�?? segir í bókarkynningu.
Kristín Jóhannsdóttir er fædd 1960 og uppalin í Vestmannaeyjum. Eftir stúdentspróf frá MH lá leiðin til Noregs, en Kristín bjó í Osló og vann á skrifstofu Flugleiða í tvö ár. Eftir það fluttist hún til �?ýskalands, en hún bjó bæði í austur- og vesturhlutanum þ.e. Freiburg, Berlín, Leipzig og Frankfurt í 20 ár. Kristín stundaði nám í Freiburg, Berlín og Leipzig og lauk magisterprófi í bókmenntum og sagnfræði árið 1991 frá Frei Universität í Berlín.
Eftir nám varð Kristín fréttaritari R�?V í Berlín. Hún gegndi því starfi í 10 ár á sögulegu tímabili eftir fall múrsins 1989. Hún var kynningar- og markaðsstjóri Icelandair í �?ýskalandi frá 2000 til 2004, en þá kölluðu heimahagarnir.
Frá 2004 hefur hún búið í Vestmannaeyjum séð þar um ferða- og markaðsmál m.m. Frá opnun Eldheima, nýja eldgosasafnsins í Eyjum hefur hún verið forstöðumaður safsins. Kristín hefur unnið við fararstjórn víða um heim frá því á námsárunum.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.