Hvergi meiri samdráttur í komum skemmtiferðaskipa
Komur skemmtiferða til Vestmannaeyja skipta miklu. Mynd Addi í London.

Í síðustu viku komu til landsins forsvarsmenn frá MSC Cruises, Royal Caribbean Group, Carnival Corporation, Windstar Cruises, Ponant og), öll félög sem  sent hafa skemmtiferðaskip til Íslands undanfarin ár, ásamt samtökunum CLIA (Cruise Lines International Association). Tilefni heimsóknar var funda með þingmönnum og stjórnsýslu. Til að koma á framfæri áhyggjum um fækkun á komum skemmtiferðaskipa til landsins vegna mjög hárra innviðargjalda sem lögð voru á með nánast engum fyrirvarar og óvissu sem það hefur skapað ásamt öðrum breytingum á rekstrarumhverfi skemmtiferðaskipa á Íslandi undanfarin ár.

„Við funduðum með þingmönnum og fólki úr stjórnsýslunni. Skilaboðin voru að  útgerðir skemmtiferðaskipanna hafa alla tíð sýnt skilning á mikilvægi þess að ríkissjóður, sveitarfélög og samfélagið hafi tekjur af starfseminni svo lengi sem gjaldtakan sé ákvörðuð með að lágmarki tveggja ára fyrirvara og án þeirrar mismununar sem stjórnvöld hafa sýnt fram að þessu,“ segir Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, samtaka hagsmunaaðila hér á landi.

„Það er fullur vilji hjá öllum innan geirans að standa að langtíma stefnumótun með stjórnvöldum. Þannig hefur það verið eins og bersýnilega má sjá af reglulegum heimsóknum forsvarsmanna skemmtiferðaskipa hingað til lands undanfarin ár. Líka sú staðreynd að öll skipafélögin eru samtaka, öll sem eitt, í viðleitni sinni að vera í góðri samvinnu við alla hagaðila á Íslandi.“

Sigurður Jökull segir að samtölin hafi verið hreinskiptin, opin og skilningur ríkt. „Skilaboðin til forsvarsmanna félaganna voru mikill vilji þingmanna á að endurskoða ætti innviðargjöld, þannig að meiri sanngirni og fyrirsjáanleiki væri til staðar fyrir skipafélögin að vinna eftir til næstu 10 ára. Ekki síst í ljósi þess að mikil fækkun er fyrirsjáanleg á komum skemmtiferðaskipa til landsins á næstu árum, 17% fyrirséð á næsta ári og 37% árið þar á eftir, miðað við árið 2024. Þessi fækkun kemur sérstaklega niður á landsbyggðinni og öllum þeim fjölda sem hefur atvinnu af því að þjónusta skipin og farþega þeirra. Þjónusta sem er mjög yfirgripsmikil,“ segir Sigurður Jökull.

„Stundum má segja, að glöggt er gests augað eins og sagt er. Þegar framkvæmdastjóri samtakanna Cruise Baltic, benti mér á eftir að hafa séð þessar hræðilegu bókunartölur frá Íslandi: – Áttar þú þig á því að þetta er hreint hrun sem er einstakt á heimsvísu. Hvergi er meiri samdráttur í komum skemmtiferðaskipa,“ bætir Sigurður Jökull við.

Samkvæmt upplýsingum frá samtökum skemmtiferðaskipa, þ.e.a.s. bæði AECO og CLIA, er hvergi samdráttur í skipakomum nema á Íslandi. Miðað við bókanir fækkar komum skemmtiferðaskipa til Vestmannaeyja úr 109 í ár í 67 árið 2027 og munar um minna.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.