Hvert stefnum við?

Atvinnustefna er hverju byggðarlagi miklvæg. Við hér í Eyjum höfum verið heppin með þau öflugu fyrirtæki sem hér starfa á traustum grunni. En hvernig er staðan, hvert stefnum við og hvernig er framtíðin? Við erum sjávarútvegssamfélag með vaxandi ferðaþjónustu, en hvað meira?

Hvernig sjá Eyjamenn samfélagið sitt vaxa og dafna þegar litið er til nýrra og fjölbreyttra atvinnutækifæra? Hvernig sjá þeir sem nú eru að reka fyrirtækin í Eyjum framtíðina fyrir sér? Eða þeir sem vilja stofna ný fyritæki? Hvar liggja tækifærin okkar og sóknarfærin

Þetta eru margar spurningar og við mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar þurfum við að að freista þess að nálgast svörin. Það gerir okkur betur í stakk búin til að grípa tækifærin þegar þau gefast og til að finna þau sem liggja falin. Við erum kannski ekki að kveikja nógu hratt og vel á öllum þeim möguleikum sem eru fyrir hendi. Í þessum efnum getur okkar öfluga Þekkingarsetur leikið lykilhlutverk og verið einskonar vagga framþróunar.

Á bæjarstjórnarfundi í næstu viku verður lögð fram tillaga um að hefja markvissa vinnu við mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar. Það ferli þarf að vera faglegt og opið því þetta er ekki eitthvað sem eingöngu er unnið á pólitískum vettvangi. Allir hagaðilar í Eyjum þurfa að koma að þessari vinnu og sömuleiðis þarf að kalla eftir hugmyndum frá öllum þeim sem telja sig hafa eitthvað til málanna að leggja.

Mikilvægt er að hefja þessa umræðu sem fyrst og með sem flestum. Ég er viss um allir fulltrúar í bæjarstjórn Vestmannaeyja eru sama sinnis og hlakka til að ræða málið á þeim vettvangi.

Atvinnustefna á að vera til fyrir Eyjar!

Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Gönguleið austur á nýja hrauni
Ákvörðun um höfn tekin klukkan sex í fyrramálið
Sjaldheyrðar Eyjaperlur fengu að hljóma í Eldheimum
Þjóðhátíðarlögin ómuðu á landsmóti lúðrasveita
Erna Georgsdóttir formaður goslokanefndar 2027
Mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Jóker-vinningur á miða úr Eyjum
ÍBV B áfram í 16-liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Herði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.